Frsm. menntmn. (Árni Gunnarsson):
Herra forseti. Menntmn. Nd. hefur fjallað um frv. til þjóðminjalaga á mörgum fundum og leggur á það miklu áherslu að hraðað verði afgreiðslu þessa máls hér á þingi þannig að það verði að lögum fyrir þinglok.
Það náðist alger samstaða í nefndinni um það nál. sem hér er flutt á þskj. 982, svo og þær brtt. sem fluttar eru á þskj. 983. Í nál. segir, með leyfi forseta:
,,Nefndin hefur fjallað um frumvarpið á mörgum fundum og sent það víða til umsagnar. Svör bárust frá eftirtöldum: starfsfólki Þjóðminjasafns, séra Gísla H. Kolbeins, Stykkishólmi, Þórði Tómassyni, safnverði í Skógum, Þór Magnússyni þjóðminjaverði, Gunnlaugi Haraldssyni, forstöðumanni Byggðasafns Akraness og nærsveita, Guðnýju Gerði Gunnarsdóttur, safnverði við Minjasafn Akureyrar, Margréti Hermannsdóttur, fornleifafræðingi við Háskóla Íslands, Ragnheiði H. Þórarinsdóttur borgarminjaverði, Sigríði Sigurðardóttur, minjaverði í Skagafirði, Sveinbirni Rafnssyni, prófessor og forseta heimspekideildar Háskóla Íslands, Guðmundi Karlssyni, Byggðasafni Húnvetninga og Strandamanna á Reykjum, Gísla Arasyni, safnverði við Byggðasafn A-Skaftafellssýslu, Ingu Láru Baldvinsdóttur, formanni Félags íslenskra safnmanna, Sigmundi Andréssyni, safnverði við Byggðasafn Vestmannaeyja, Gyðu Gunnarsdóttur, safnverði Sjómannasafns Íslands, Elísabetu Sigurgeirsdóttur, Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi, Guðleifi Sigurjónssyni, stjórnarformanni Byggðasafns Suðurnesja, Guðrúnu Kristinsdóttur, safnverði við Safnastofnun Austurlands, Ingu Láru Baldvinsdóttur, formanni byggðasafnsnefndar Sjómannasafnsins á Eyrarbakka, og Magnúsi Jónssyni, byggðasafnsnefnd Hafnarfjarðar.``
Eins og áður sagði mælir nefndin með samþykkt frv. með breytingum sem tillaga er gerð um á sérstöku þingskjali. Í tillögum þessum er gengið til móts við sjónarmið þeirra sem vilja styrkja þann þátt málsins er lýtur að fornleifum og verndun þeirra. Þannig er m.a. tekin upp sem breytingartillaga 3. gr. frv. til laga um verndun fornleifa, en það frumvarp hefur einnig verið til umfjöllunar í nefndinni. Nefndin telur einnig rétt að stofnuð verði sérstök fornleifanefnd, skipuð af menntamálaráðherra, sem fari með yfirstjórn fornleifavörslu og fornleifarannsókna í landinu í umboði þjóðminjaráðs. Jafnframt er gert ráð fyrir sérstakri fornleifadeild við Þjóðminjasafn Íslands og skal deildarstjóri þeirrar deildar vera fornleifafræðingur að mennt og sömu kröfur eru gerðar til fornleifavarða er verða ásamt minjaverði einn á hverju minjasvæði.
Aðrar breytingartillögur nefndarinnar eru flestar byggðar á hugmyndum og tillögum sem fram komu í aðsendum umsögnum. Undir þetta nál. rita nöfn sín allir nefndarmenn í menntmn. Nd., þ.e. Ragnar Arnalds, Birgir Ísl. Gunnarsson, Árni Gunnarsson, Ragnhildur Helgadóttir, Þórhildur Þorleifsdóttir, Ólafur Þ. Þórðarson og Guðmundur G. Þórarinsson.