Vaxtalög
Miðvikudaginn 03. maí 1989

     Eyjólfur Konráð Jónsson:
    Herra forseti. Eins og fram kom við afgreiðslu málsins til Nd. hér fyrir skömmu þar sem ég gerði grein fyrir áliti minni hl. nefndarinnar lét minni hl. afgreiðslu málsins í heild sinni afskiptalausa. Hins vegar er það alveg ljóst að það sem formaður hv. nefndar nú sagði er kórrétt. Við viljum að þessu orðalagi sé breytt, þeim orðum sem hann lýsti bætt inn, en afstaða okkar að öðru leyti er auðvitað óbreytt. Við munum greiða fyrir að málið fái framgang í hv. deild en erum ekki ábyrgðarmenn að málinu að öðru leyti.