Vaxtalög
Miðvikudaginn 03. maí 1989

     Guðmundur Ágústsson:
    Virðulegi forseti. Ég vil taka undir það sem fram kom hjá hv. síðasta ræðumanni, þ.e. ég er ekki alveg sammála lögunum sem slíkum en hins vegar þessari breytingu sem gerð er nú á lögunum, að orðin ,,á óréttmætan hátt`` komi inn í 7. gr. Þessi orð, ,,á óréttmætan hátt``, hafa valdið miklum erfiðleikum við túlkun og þegar málið var til meðferðar í Nd. voru þau felld út en núna tökum við í Ed. þau upp aftur.
    Það má gera athugasemd við alla þessa grein og líka spyrja sig að því hvort nauðsynlegt sé að hafa svona misneytingarákvæði í vaxtalögum þar sem í almennum hegningarlögum, 253. gr., er sams konar ákvæði, um svokallaða misneytingu, en í þeirri grein segir:
    ,,Hafi maður notað sér bágindi annars manns, einfeldni hans, fákunnáttu eða það, að hann var honum háður, til þess að afla sér með löggerningi hagsmuna eða áskilja sér þá, þannig að bersýnilegur munur sé á hagsmunum þessum og endurgjaldi því, sem fyrir þá koma eða skyldi koma, eða hagsmunir þessir skyldu veittir án endurgjalds, þá varðar það varðhaldi eða fangelsi allt að tveimur árum.``
    Þetta er hið almenna misneytingarákvæði hegningarlaganna, en hér er verið að tala um í vaxtalögum sérstakt misneytingarákvæði og má segja að ef þetta kemur til kasta dómstóla þá tæmi það svokallaða sök gagnvart þessu ákvæði. Hérna hefur frekar verið um áréttingu að ræða, að það megi ekki taka hærri vexti en ákvarðaðir eru í bankakerfinu og á það get ég að vissu leyti fallist, en ég vil samt benda á að sams konar ákvæði eru í hegningarlögunum og raunar sams konar ákvæði í samningalögunum líka sem fjalla um það að nýta sér aðstöðumun. Þetta vildi ég að kæmi hér fram, en varðandi orðin sjálf, ,,á óréttmætan hátt``, eru þau í sjálfu sér mjög villandi og óæskilegt er að hafa í lagatexta lýsingarorð sem mæla fyrir um háttsemi. Yfirleitt er þetta í lagatexta orðað þannig að það komi alveg skýrt fram hvaða háttsemi er refsiverð og það megi ekki vera þar um neitt mat að ræða, eins eða neins, en þar sem vextir eru mjög breytilegir og oft erfitt að gera sér grein fyrir hvað eru löglegir og hvað eru ólöglegir vextir, þá getur maður fallist á að í textanum komi þetta lýsingarorð fram. Við þingmenn verðum hins vegar að reyna að vara okkur mjög á því að hafa ekki refsiákvæði þannig að það sé háð mati dómara hverju sinni hvort háttsemin telst refsiverð eða ekki.
    Þetta vildi ég að kæmi fram og þessi skýring á því að ég er meðmæltur því að hafa breytinguna með þessum hætti.