Frsm. 2. minni hl. fjh.- og viðskn. (Halldór Blöndal):
Herra forseti. Ég fellst út af fyrir sig á það að brtt., sem hér er flutt, sé í samræmi við lög um viðskiptabanka að öðru leyti, uppbyggingu þeirra, og að því leyti er sú brtt. til bóta. Ég minni á hinn bóginn á það að frv. í heild, þegar það er metið, er síður en svo til bóta. Einkum á það við 2. gr. frv. að hún er til mikils óhagræðis fyrir viðskiptavini viðskiptabankanna og fæ ég ekki annað séð en að hún muni valda því að viss viðskipti hljóti að falla niður eða breyta verulega um eðli, þannig að búast megi við því að viðkomandi aðilar sitji við verra borð en áður varðandi lánskjörin í heild, afgreiðslu og fjármagnskostnað af þeim viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfum sem þar er fjallað um og settar mjög þröngar skorður.
Ég vil aðeins ítreka það sem áður hefur komið fram um þessi efni að tala þeirra frv. á þessu þingi og tala þeirra yfirlýsinga sem ríkisstjórnin hefur gefið um fjármagnskostnað, um viðskiptabanka og sjóði, er farin að skipta legio. Og flest þessara mála eru til óhagræðis og sum þeirra hafa beinlínis í för með sér aukna skattheimtu og hærri fjármagnskostnað en áður. Mjög skýrt dæmi um þetta er frv. sem nú er til athugunar í fjh.- og viðskn. um ríkisábyrgð. Ef það frv. verður að lögum mun það t.d. þýða það að vextir á verðtryggðum lánum til bænda muni hækka um *y1/2*y% sem er auðvitað verulegt fyrir þá búgrein eins og kjör hennar í heild eru og eins og þrengt er að kostum hennar að öðru leyti.
Ég geri ekki ráð fyrir að það skipti svo sem miklu þó reynt sé að færa þau sömu rök og gert var hér við 2. umr. málsins síðast og rifja upp þau sömu rök gegn þessu frv. og tíunduð voru í Nd. Það er nú einu sinni svo um mörg af frv. þessarar ríkisstjórnar sem lögfest hafa verið að það verður fyrsta verk næstu ríkisstjórnar sem hér kemur í landinu, vonandi fyrr en síðar, að flytja frv. um það á Alþingi að færa málin til hins fyrra horfs, nema svo fari að ríkisstjórnin verði sjálf á undan þegar hún rekur sig á, en eins og fram kom í yfirlýsingum ríkisstjórnarinnar í tengslum við síðustu kjarasamninga er hún nú á hröðu undanhaldi og veit raunar ekki sitt rjúkandi ráð. Ég sé ekki, herra forseti, ástæðu til þess að hafa um þetta fleiri orð. Það má vera að eins fari fyrir þessu frv. og hinu síðasta að Nd. breyti því líka á nýjan leik og það fari þá leiðina til Sþ. Stefnan breytist svona frá degi til dags. Það fer svolítið eftir því hverjir eru erlendis og hverjir eru við í þinginu hvað er samþykkt hér af meiri hlutanum í deildinni hverju sinni.