Búfjárræktarlög
Miðvikudaginn 03. maí 1989

     Frsm. landbn. (Alexander Stefánsson):
    Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. frá landbn. um frv. til l. um breytingar á búfjárræktarlögum, nr. 31 24. apríl 1973.
    ,,Nefndin hefur fjallað um frv. og fengið um það umsögn frá Búnaðarfélagi Íslands. Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt með eftirfarandi breytingu:
    Við 1. gr. Í stað orðanna ,,að forða ágangi`` í fyrri efnismálsgrein komi: að koma í veg fyrir ágang.``
    Undir þetta rita allir nefndarmenn landbn., auk frsm. þeir Guðni Ágústsson, Þórður Skúlason, Ingi Björn Albertsson, Jón Sæmundur Sigurjónsson, Eggert Haukdal og Pálmi Jónsson.