Kristín Einarsdóttir:
Virðulegur forseti. Ég vil lýsa ánægju minni yfir því að þetta frv. er komið hingað til þessarar deildar eftir umfjöllun Ed. Þó að ég hafi verið orðin óþolinmóð og langeyg eftir að sjá frv. eftir samþykkt Alþingis, á síðasta löggjafarþingi, á þáltill. um þetta efni verð ég samt að hrósa þeim sem þetta frv. leggur fram fyrir að bregðast, að ég held, tiltölulega skjótt við miðað við það sem oft er og lýsa ... ( Gri pið fram í: Starfið var hafið áður.) Kemur fram að starfið var hafið áður og vel getur verið að það hafi flýtt fyrir málinu, en það breytir ekki því að ég lít ekki svo á að þetta þurfi að vera mjög flókið og erfitt mál þó að það hafi kannski staðið ansi í fólki hingað til. Ég vildi því lýsa ánægju minni með hversu langt þetta mál er nú komið.
Ég verð samt að lýsa vonbrigðum með það að Ed. skyldi hafa breytt upphaflega frv. þar sem talað er almennt um einnota umbúðir en núna er lagt til að verði eingöngu takmarkað við málm, gler og plastefni. Ég hefði gjarnan viljað sjá þetta víðtækara og vona að þetta verði eingöngu eitt skref og síðan munum við fljótlega taka stærri og fleiri skref og halda þá einnig áfram á þessari sömu braut og taka þá til við brotamálm og fleiri þætti sem svo sannarlega eru skyldir þessu máli.
Ég veit ekki hvort ég á að fara í einstökum atriðum yfir frv. en hefði þó viljað leggja áherslu á að mér finnst þetta 10 kr. gjald sem þarna er gert ráð fyrir í 1. gr. vera algjört lágmark. Það þarf kannski ekki að taka það fram að 10 kr. væru fljótar að rýrna ef um er að ræða einhverja verðbólgu þannig að ég reikna með að það sé þá miðað við það verðgildi sem þessar 10 kr. hafa við samþykkt frv. eins og ég vona að verði gert núna á næstu dögum.
Ég er einnig dálítið efasemdafull vegna niðurlags 3. gr. sem gerir ráð fyrir að 5% af árlegum tekjuafgangi fyrirtækisins eða félagsins sem þarna starfar á þessu sviði renni til Náttúruverndarráðs. Ég hefði gjarnan viljað sjá einhverja aðra viðmiðun en tekjuafgang og vildi spyrja hvers vegna þessi viðmiðun var tekin en ekki eitthvert annað viðmið, t.d. eins og að ákveðinn hluti af þessu gjaldi færi til Náttúruverndarráðs en ekki eingöngu tekjuafgangur sem ég geri ráð fyrir að verði ekki mjög mikill, fyrstu árin a.m.k.
Ég ætla ekki að nota mikinn tíma í það að ræða um mikilvægi umhverfisráðuneytis og vil kannski lýsa því yfir og láta það duga að ég er algjörlega ósammála síðasta ræðumanni, hv. 1. þm. Reykv., í því að þetta sé ónauðsynlegt og enn eitt báknið sem muni tefja fyrir og sé af hinu illa, þ.e. nýtt umhverfisráðuneyti. Ég held að það muni einmitt verða til einföldunar og til mikilla bóta en ætla ekkert frekar að ræða það hér við þessa umræðu.
Ég vona að okkur auðnist að afgreiða þetta mál á þessu þingi og mun gera mitt til þess að svo megi verða.