Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Borist hefur svohljóðandi bréf, dags. 5. maí 1989:
    ,,Guðmundur G. Þórarinsson, 10. þm. Reykv., hefur ritað mér á þessa leið:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Framsfl. í Reykjavík, Finnur Ingólfsson, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.``
    Þetta er yður hér með tilkynnt, hæstv. forseti.
Kjartan Jóhannsson,

forseti Nd.``

    Finnur Ingólfsson hefur áður átt sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og er hann boðinn velkominn til starfa á Alþingi.