Forseti (Guðrún Helgadóttir):
Evrópuráðið á 40 ára afmæli í dag. Dagsins er minnst með hátíðlegum hætti bæði í Strasbourg og aðildarríkjunum og þykir því hlýða að Alþingi verji nokkrum tíma í upphafi þessa fundar til að minnast þessara merku tímamóta.
Evrópuráðið var stofnað í London 5. maí 1949. Að stofnun ráðsins stóðu upphaflega tíu ríki, en síðan hafa sífellt fleiri verið að bætast í hópinn þannig að í dag eru þau 23 talsins. Ísland gerðist aðili að Evrópuráðinu í mars 1950. Reynslan af ógnum heimsstyrjaldarinnar síðari varð hvatinn að stofnun Evrópuráðsins. Þar lá að baki sú einlæga von að aukinn skilningur og samvinna þjóða á milli gæti komið í veg fyrir að slíkur hildarleikur endurtæki sig. Undirtónninn í stofnskrá samtakanna er því verndun mannréttinda og efling félagslegs öryggis eins og stofnun Mannréttindadómstólsins og mannréttindanefndarinnar ber með sér.
En sjóndeildarhringur stofnendanna var í raun víðari. Í hillingum sáu þeir fyrir sér friðsama og sterka Evrópu með víðtæka samvinnu á sem flestum sviðum. Á þeim 40 árum sem liðin eru frá stofnun Evrópuráðsins hefur það sannað ágæti sitt svo að ekki verður um villst. Það lætur nú til sín taka á fjölmörgum sviðum þjóðmálalífsins og nægir þar að nefna samvinnu á sviðum er varða atvinnu- og efnahagsmál, menningarmál, vísindi, listir, lög, svo að fátt eitt sé tínt til. Áhrif þess á löggjöf og stjórnsýslu aðildarríkjanna hafa verið umtalsverð.
Ekki leikur vafi á því að þátttaka okkar í starfsemi Evrópuráðsins hefur reynst heilladrjúg. Nú þegar við stöndum frammi fyrir því að ríki Evrópubandalagsins munu innan fárra ára mynda eina efnahagslega heild hlýtur Evrópuráðið að vera ákjósanlegur vettvangur til að fylgjast með þeim hræringum sem eiga sér stað og vega og meta áhrif þeirra á hagsmuni okkar. Okkur ber því að rækta samskiptin við Evrópuráðið vel.
Nú er mikil þíða í samskiptum austurs og vesturs og ekki er að efa að Evrópuráðið getur látið margt gott af sér leiða í þeim efnum. Innan vébanda Evrópuráðsins svo og annarra samtaka getum við lagt okkar lóð á vogarskálarnar til að komandi kynslóðir fái lifað í friðsamlegum og mannúðlegum heimi.
Kjartan Jóhannsson, forseti Nd., er sérlegur fulltrúi Alþingis á hátíðarsamkomunni í Strasbourg í dag og situr hana sem gestur Evrópuráðsþingsins. Mun hann koma á framfæri heillaóskum Alþingis í tilefni afmælisins.