Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forseti verður að gera þá játningu að í fyrsta lagi hafði ég hreinlega ekki tekið eftir þessari fyrirsögn, því síður gefið út neina tilskipun um að þetta orðalag skyldi viðhaft. Ég mun ræða þetta við starfsmenn þingsins og sjá svo til að ef menn kunna illa við þetta orðalag sé reynt að sjá svo til að það verði ekki notað.