Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forseti vill upplýsa að umrætt bréf hefur borist og forseti hefur gert hæstv. utanrrh. viðvart um bréfið og hefur ákveðið að doka við og kanna hvort fullnægjandi svar berst frá honum, áður en til Ríkisendurskoðunar yrði leitað og vona ég að hv. 1. þm. Reykn. sé samþykkur þeirri afgreiðslu.