Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
Virðulegi forseti. Eins og fram kom í máli fyrirspyrjanda lét Áhugafélag um sykuriðnað hf. og Finska Socker AB fara fram athuganir á því á árunum 1979--1980 hvort ráðlegt væri að reisa og reka verksmiðju um sykurvinnslu í Hveragerði sem ætlað væri að nota í rófumelassa sem hráefni og jarðgufu sem varmaorku. Skýrsla um þessa athugun lá fyrir snemma á árinu 1980. Iðnrn. skipaði svo um vorið starfshóp til að fara yfir þessa skýrslu. Í niðurstöðu starfshópsins, sem eins og kom fram í máli fyrirspyrjanda lá fyrir 1981, en í þessum starfshópi voru þrír menn, Hörður Jónsson, Ragnar Önundarson og Sigurður Sigfússon, sagði m.a., með leyfi hæstv. forseta:
,,Það er samdóma álit nefndarmanna og hagsmunaaðila, þ.e. fulltrúa Finska Socker og Áhugafélags um sykuriðnað, að meginforsenda hagkvæmni íslenskrar sykurverksmiðju sé að sett verði sérstök sykurlög er heimili að sykurinnflutningur verði annaðhvort bannaður eða tollaður þannig að innfluttur sykur verði ekki seldur á lægra verði hér en sem nemur lágmarksframleiðslukostnaði íslensku verksmiðjunnar að viðbættum hæfilegum hagnaði.``
Iðnrh. bar fram frv. á Alþingi 1982 um heimild til þátttöku ríkisins í sykurverksmiðju sem ekki náði fram að ganga eins og kom fram í máli hv. fyrirspyrjanda. Síðan hefur ekki verið hafst að af hálfu iðnrn. í þessu máli og ekki eru uppi áform um að taka það upp að nýju.
Meginástæðan fyrir þessu er sú að það mun enn vera grundvallarskilyrði, forsenda þess að hagkvæmt sé að reka slíka verksmiðju að sett verði sykurlög þar sem heimild væri fyrir tollvernd, takmörkun á sykurinnflutningi beinlínis eða banni.
Ég tel ekki vænlegt að byggja nýja framleiðslugrein á verndarlöggjöf af þessu tagi og minni á að hagsmunir Íslendinga í stærra samhengi eru af fríverslun milli landa og þá ekki síst fyrir okkar helstu framleiðsluvöru, fiskafurðir. Við eigum ekki að fara með ríkisatbeina út í slíka framleiðslu, en ef einstaklingar eða samtök þeirra sjá grundvöll fyrir úrvinnslu úr innfluttum hráefnum af því tagi sem hér er um að tefla geta þeir að sálfsögðu sett upp slík fyrirtæki. Ég minni t.d. á hveitimyllu og fóðurblöndun sem hér fer fram sem að sumu leyti mætti jafna til þessa. Um sykurvinnslu hefur hins vegar ekki tekist að mynda slíkt félag á eigin ábyrgð þeirra sem að rekstrinum standa.
Ég minni líka á að það er gagnrýnt á alþjóðavettvangi hvernig Vestur-Evrópumenn standa yfirleitt að sinni sykurframleiðslu, en þar framleiða menn sykur úr rófum sem eru ræktaðar með miklum ríkisstyrkjum á sama tíma og þróunarríkjunum er torveldaður aðgangur að markaði með sykur og sykurreyr og sykurvörur sem þau hafa eðlilegar forsendur til að stunda. Þetta stuðlar auðvitað ekki að því að þar komi fram öflugur sykuriðnaður, en ég tel að við eigum að leggja okkar litla lóð á vogarskálar til þess að það megi verða fremur en að hefja hér
sjálfir verndaða sykurframleiðslu.