Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
Virðulegi forseti. Það er rétt, sem hv. fyrirspyrjandi sagði í ræðu sinni áðan, að auðvitað hefði þurft að vera búið áður en framhaldsskólalögin voru sett að undirbúa nýtt fyrirkomulag framhaldsskólans, koma þar fyrir margvíslegum brautum, löngum og stuttum, sem unnt er að laga að þörfum nemendanna, en í staðinn eru framhaldsskólalögin sett án þess að inntaki framhaldsskólans hafi verið breytt samhliða eða áður og það er mjög alvarlegur hlutur. Það er ekki fyrr en sl. haust að það fer í gang í menntmrn., sennilega er það í nóvember eða desember, nokkrum vikum eftir að við komum þangað inn, að við setjum í gang hóp sem hefur verið að fjalla um breytt inntak framhaldsskólans þar sem gert er ráð fyrir verulegum breytingum á námsframboði frá því sem verið hefur, m.a. víðtækum tengslum námsbrautanna við atvinnulífið. Við höfum ákveðið að verk af þessu tagi hljóti að taka nokkurn tíma. Við getum ekki sett það inn í alla skóla í haust. Það væri óskynsamlegt að reyna slíkt. Það er óskynsamlegt að gera tilraunir til að kollsteypa skólakerfinu með þeim hætti í einu vetfangi. Þess vegna höfum við ákveðið að hefja tilraunir með nýtt inntak framhaldsskólanámsins í tveimur framhaldsskólum í haust. Ég reikna með að það verði í Fjölbrautaskóla Suðurnesja og í Fjölbrautaskólanum á Selfossi.
Ég vík þessu næst að greinargerð sem ég vænti að svari að öðru leyti spurningum hv. þm.
Á liðnum árum hafa verið í gildi ákveðnar reglur um lágmarksárangur nemenda á grunnskólaprófi til þess að þeir gætu hafið reglulegt nám í framhaldsskóla. Þrátt fyrir þetta hefur skólum verið heimilt að taka inn nemendur sem ekki fullnægðu þessum skilyrðum og hefur þeim verið gefinn kostur á sérstöku námi, fornámi eða núlláföngum eins og þeir hafa verið kallaðir, til að bæta undirbúning sinn. Í raun hefur það því verið þannig að allir sem lokið hafa námi úr grunnskóla hafa átt kost á framhaldsskólanámi. Það hefur í raun og veru verið þannig. Fornámið hefur hins vegar ekki verið við alla skóla og hefur t.d. ekki verið starfrækt í Reykjavík nema á tveimur stöðum.
Samkvæmt nýjum lögum um framhaldsskóla sem sett voru í fyrra eiga allir sem lokið hafa grunnskólanámi eða hlotið jafngilda undirstöðumenntun rétt á að hefja nám í framhaldsskóla að fullnægðum skilyrðum um starfsþjálfun þar sem hennar er krafist. Síðan segir: ,,Nemendum er skylt að stunda fornám í einstökum námsgreinum samkvæmt ákvæðum í námsskrá hafi þeir ekki náð tilskildum lágmarksárangri.``
Í brtt. við stjfrv. sem liggur fyrir Ed. er gert ráð fyrir því að fella þessa skyldu niður. Það verður auðvitað eftir sem áður heimilt að starfrækja þennan þátt í skólastarfi, fornám, a.m.k. fyrst um sinn þar til breytingar á inntaki framhaldsskólanámsins í heild hafa tekið gildi.
Raunveruleg breyting á reglum um innritun í framhaldsskóla er því í raun og veru ekki mikil miðað
við það sem verið hefur. Vegna þeirrar umræðu hins vegar sem þetta lagaákvæði hefur vakið á síðustu vikum er þó líklegt að einhverjir sem ekki hefðu farið í framhaldsskóla að öllu óbreyttu vakni til umhugsunar um það að þarna opnist tækifæri til náms sem rétt væri að nota sér. Auk þess hefur atvinnustig í landinu áhrif á aðsókn að framhaldsskólum og við vitum ekkert hvernig það kemur út. Og í þriðja lagi er ljóst að það er a.m.k. rétt að gera ráð fyrir því að verkfall það sem staðið hefur nú um fjögurra vikna skeið hafi líka áhrif í þá átt að nemendur í framhaldsskóla í haust verði fleiri en ella hefði verið ef ástandið í skólunum hefði verið með eðlilegum hætti á þessu vori.
Hlutfallsleg aðsókn að framhaldsnámi hefur farið vaxandi á síðustu árum og var árið 1987 76% á öllu landinu af árgangi 16 ára nemenda og um 81% á Reykjavíkursvæðinu. Um þessar mundir koma auk þess tiltölulega stórir árgangar inn í framhaldsskólann og af þessum sökum er áætlað að nemendum fjölgi um um það bil 150 í Reykjavík á næsta skólaári og hlutfallslega í öðrum skólaumdæmum.
Almennir framhaldsskólar í Reykjavík eru nú mjög þéttsetnir. Er hér fyrst og fremst um að ræða nemendur sem búsettir eru í Reykjavík, en auk þeirra eru nálægt 1500 nemendur ... Ég var að velta því fyrir mér, virðulegi forseti, hvort það væri ekki hugsanlegt að ég mætti ganga á seinni skammtinn líka til þess að fyrri skammturinn væri vandaður. Ég verð að hætta í miðjum klíðum nema forseti heimili annað. Heimilar forseti að ég geri tilraun í eina og hálfa mínútu í viðbót? ( Forseti: Forseti hefur gefið hæstv. ráðherra merki um að hans tíma sé lokið, en ef hann er um það bil að ljúka sínu máli sjáum við til.) Ég tel að það sé sárastutt eftir, hæstv. forseti, og ég þakka þolinmæði forseta. Hins vegar er ekki víst að það sé samt sem áður innan marka þingskapa. En nú skal ég mjög herða róðurinn.
Ég var þar kominn sögu að það eru um 1500 nemendur á Reykjavíkursvæðinu í framhaldsskólum sem eru utan af landi og við gerum nú í vor ráð fyrir því að hefja sameiginlega innritun í framhaldsskólana hér á höfuðborgarsvæðinu og reynum eins og kostur er að beina fólki til skóla í sínum byggðarlögum sem margir eru vansetnir og gætu tekið við mun fleira fólki, margir
framhaldsskólar úti á landi. Við munum leggja á þetta mikla áherslu og á mánudaginn hef ég boðað fund með skólameisturum á höfuðborgarsvæðinu þar sem gert er ráð fyrr því að það verði skipulögð sameiginleg innritun í alla framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu frá Reykjavík og suður í Hafnarfjörð.
Varðandi málið að öðru leyti má segja að meginundirbúningurinn fyrir næsta vetur hafi farið fram í þessari nefnd um breytt inntak framhaldsskólans þar sem verið er að fara yfir alla þætti málsins. Í þeirri endurskipulagningu er gert ráð fyrir því að nemendur eigi kost á fleiri stuttum námsbrautum þannig að þeir geti útskrifast eftir
tiltölulega stuttan tíma, eina, tvær, þrjár eða jafnvel fjórar annir, og fái þetta nám staðfest með sérstöku prófskírteini og það er gengið út frá því að nemendum þessum nýtist þetta nám ef þeir óska að halda áfram námi síðar. Það er gert ráð fyrir því, eins og ég sagði áðan, að nýbreytni af þessu tagi taki gildi í haust í tilraunaskyni í a.m.k. tveimur skólum.
Skipulagning af þessu tagi er hins vegar mjög viðamikil, bæði varðandi áfangalýsingar og námsgögn, og einnig þarf að þjálfa kennara í breyttum vinnubrögðum. Allt er þetta verk óunnið, hefði átt að vinna í fyrra og hittiðfyrra en var því miður ekki farið af stað með fyrr en í haust. En ég tel að þessi þróun sé á réttri braut strax og úr vinnudeilunum leysist og ég vil svo taka undir það með hv. þm. að lokum að auðvitað verður að tefla inn í þessa mynd námsráðgjöfum í stórauknum mæli og það er m.a. gert ráð fyrir því í sameiginlegri innritun í framhaldsskólana á Reykjavíkursvæðinu í vor að þar verði námsráðgjafi ráðinn til að vinna með þeim nemendum sem koma til innritunar í framhaldsskólana hér á höfuðborgarsvæðinu.