Náms- og kennslugögn
Föstudaginn 05. maí 1989

     Fyrirspyrjandi (Guðrún Agnarsdóttir):
    Virðulegi forseti. Á þinginu 1983--1984 var lögð fram þáltill. um kennslugagnamiðstöðvar í öllum fræðsluumdæmum. Flm. hennar voru þingmenn úr öllum flokkum og samtökum á þingi. Ástæða fyrir flutningi þessarar tillögu var fyrst og fremst sá aðstöðumunur sem er á námi og kennslu barna hér á landi og tók tillagan á einum þætti þessa aðstöðumunar, þ.e. að jafna aðgang að námsgögnum, kennslutækjum og öðrum hjálpargögnum. Ætlað var að finna þessum gögnum samastað í tengslum við fræðsluskrifstofur í hverju fræðsluumdæmi þaðan sem þau yrðu lánuð til skóla í umdæminu. Er að þessu bæði mikill ávinningur en jafnframt beinn fjárhagslegur sparnaður.
    Þáltill. náðist ekki úr nefnd á þessu þingi og var því endurflutt óbreytt á þinginu 1984--1985 og þá fékkst hún samþykkt með nokkrum breytingum. Þetta var 13. júní 1985. Þann 3. des. sama ár gerði ég, sem einn af flm. þessarar tillögu, fsp. til þáv. hæstv. menntmrh. um það hvað liði framkvæmd könnunarinnar. Ráðherra sagði ráðuneytið hafa sent öllum fræðslustjórum, fræðsluráðum og stjórn Samtaka sveitarfélaga bréf um þetta efni. Nokkur svör höfðu þá borist með athyglisverðum tillögum, sagði ráðherra. Þó höfðu ekki allir svarað og því engin lokaafstaða tekin til málsins.
    Enn spurði ég um þetta mál þáv. hæstv. menntmrh. þann 17. febr. 1987, og þá fengust reyndar mjög svipuð svör. Að mínu viti hafði ótrúlega mikill fjöldi enn ekki svarað og verð ég að segja að það olli mér talsverðum vonbrigðum á þeim tíma.
    Síðan spurði varaþingmaður, Pétur Bjarnason, sem hér var inni á þingi, um sama mál 20. okt. 1987, hvað liði framkvæmd þessa máls, enda býst ég við að hann hafi fundið glöggt fyrir því sem fræðslustjóri á Vestfjörðum að þetta væri mál sem þyrfti úrbóta við. Þá kom enn í ljós að svör höfðu borist treglega þrátt fyrir ítrekun og þáv. menntmrh. taldi tilgangslítið að halda áfram könnun viðhorfa aðila með því að leita skriflegs álits eins og í upphafi var reynt. Hins vegar taldi hann ljóst að mikill áhugi væri á að koma upp kennslugagnamiðstöðvum við fræðsluskrifstofur, a.m.k. úti á landi. Hann taldi það rétta leið að koma slíkum miðstöðvum upp og ákvað að leita tilnefninga í nefnd til að gera úttekt á stöðu mála á þessu sviði og tillögur um skipan þeirra í framtíðinni. Þetta hugðist hann gera í samvinnu við samtök sveitarfélaga.
    Nú vil ég ítreka enn fsp. um þetta mál sem enn er brýnt og enn þarfnast úrbóta og hef því leyft mér að spyrja hæstv. menntmrh. á þskj. 860:
    ,,Hvað líður könnun á því hvernig hagkvæmast er að auðvelda öllum skólum aðgang að námsgögnum, kennslutækjum og hjálpargögnum, eins og segir í þál. þeirri er samþykkt var á Alþingi 13. júní 1985?``