Fyrirspyrjandi (Kristín Einarsdóttir):
    Virðulegur forseti. Í jafnréttislögum frá 1985 segir í 10. gr., með leyfi forseta:
    ,,Í skólum og öðrum mennta- og uppeldisstofnunum skal veita fræðslu um jafnréttismál. Kennslubækur og kennslutæki, sem þar eru notuð, skulu vera þannig úr garði gerð að kynjum sé ekki mismunað.``
    Þetta er svo til samhljóða ákvæði sem var í jafnréttislögum frá 1976, þannig að þetta er búið að vera lengi í lögum, en þrátt fyrir þetta ákvæði eru skólabækur enn langt frá því að fullnægja þessu ákvæði laganna, að mínum dómi alla vega og reyndar margra fleiri vegna þess að í skólastefnu Kennarasambands Íslands sem samþykkt var á 4. fulltrúaþingi Kennarasambandsins þann 1.--4. júní 1987 stendur, þar sem talað er um jafnrétti til náms, m.a., með leyfi forseta:
    ,,Unnið verði gegn mismunun í skólum vegna kynferðis.`` Og síðar segir: ,,Kennarasamband Íslands vill að námsefni skólanna verði endurskoðað með tilliti til jafnrar stöðu kynja og nemendur í skólum fái fræðslu um það misrétti sem konur verða enn fyrir í þjóðfélagi okkar.`` Þetta er samþykkt 1987 og er því alveg greinilegt að þrátt fyrir ákvæði í lögum í yfir 10 ár er ástandið ekki gott að mati kennara að því er varðar mismunun vegna kynferðis. Og það er einnig mitt mat og reyndar flestra sem nálægt þessum málum hafa komið að mjög mörgu sé ábótavant í þessum efnum.
    Ég hef því leyft mér að spyrja hæstv. ráðherra um þessi mál á þskj. 878, en fsp. hljóðar svo: ,,Hvað líður endurskoðun námsefnis með tilliti til jafnrar stöðu kynja?`` Og síðan: ,,Hvaða þættir hafa verið teknir til endurskoðunar að því er þetta efni varðar?`` Í því efni hef ég þá ekki síst í huga hvaða atriði eru lögð til grundvallar þegar verið er að endurskoða námsefni eins og það sem hér er talað um með tilliti til jafnréttis.