Sigló hf.
Föstudaginn 05. maí 1989

     Pálmi Jónsson:
    Virðulegi forseti. Hæstv. fjmrh. sagði hér vera skólabókardæmi um það hvernig sjálfstæðismenn færu að því að selja flokksgæðingum sínum eignir ríkisins og láta þá komast upp með það að borga ekkert fyrir. Hér var ekki verið að selja flokksgæðingum Sjálfstfl. einvörðungu, þó að þarna ættu sjálfstæðismenn hlut að máli. Það eru einnig menn annarra flokka sem keyptu þetta fyrirtæki og hefði hæstv. fjmrh. átt að kynna sér hvað hann var að tala um áður en hann lét þessi orð falla.
    Ég hlýt að rifja það upp að á meðan þetta fyrirtæki var í eigu ríkisins var tap á rekstri þess ár frá ári að jafnaði svo mikið að það samsvaraði öllum vinnulaunum sem greidd voru af hálfu fyrirtækisins og ríkissjóður þurfti að standa straum af þeim greiðslum ár frá ári. Það var sannarlega tilraun til þess að bæta úr í rekstri þessa fyrirtækis að selja það einstaklingum sem því miður fór á annan veg en til var stofnað. Það fór á annan veg en til var stofnað m.a. vegna þess að hæstv. sjútvrh., Halldór Ásgrímsson, kom í veg fyrir það að fyrirtækið fengi greiddar að hluta innstæður sínar sem það á í Verðjöfnunarsjóði fiskiðnaðarins og eru nálægt 50 millj. kr. Það var því sérstakt eftirlætismál einstakra manna úr núv. og fyrrv. ríkisstjórn að koma þessu fyrirtæki á höfuðið. Glaðhlakkalegur tónn hæstv. fjmrh. sannar að hann ber litla umhyggju fyrir atvinnurekstri á þessum stað og þeim mönnum sem þarna eiga hlut að máli. Mig grunar að fyrirspyrjanda sé líkt í hug miðað við þær spurningar sem hér liggja fyrir, sbr. athugasemd hv. 2. þm. Norðurl. e. sem var algerlega réttmæt því að sleggjudómar í fyrirspurnum til ráðherra eiga ekki rétt á sér á hinu háa Alþingi.
    Ég vil svo ítreka það að meðferð þessa máls er vitaskuld á valdi skiptaráðanda og þrotabúið er nú til meðferðar hjá skiptabústjóra. Það er því ekki á hendi annarra aðila að fást við meðferð þessa máls. Þetta hefði fyrirspyrjandi átt að vita og geta gert sér grein fyrir.