Sigló hf.
Föstudaginn 05. maí 1989

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Áður en lengra er haldið vill forseti benda á að oft er það svo að fyrirspurnir á hinu háa Alþingi koma við málefni fleiri en eins ráðuneytis. Venjan er sú að ráðherrar beri sig þá saman um svar þannig að ég tel með öllu óréttmætt að þessi fyrirspurn hafi ekki átt rétt á sér jafnvel þó að henni væri beint til fjmrh.