Fyrirspyrjandi (Jón Sæmundur Sigurjónsson):
Virðulegi forseti. Ég vil halda hv. 2. þm. Reykv., sem viðhafði nokkuð stór orð í minn garð hér áðan, það til góða að hann var ekki viðstaddur umræðuna hér áðan og gat því ekki heyrt hverju ég hélt fram. Einhver hefur mistúlkað orð mín í hans eyru. Það sem ég sagði og ég skal gjarnan segja það aftur. ( Forseti: Má ég biðja hv. þingheim að hafa hemil á sér á meðan ræðumaður lýkur sér af.) ( FrS: Hver er hv. 2. þm. Reykv.?) Mér skilst að það sé hv. --- 1. þm. Reykv., fyrirgefðu. ( FrS: Þú verður að fara rétt með í þínum ræðum.) Ég biðst afsökunar á þessu. Ég held að það hafi ekki verið nokkur vafi við hvern ég átti en ég skal gjarnan leiðrétta þetta, þetta var hv. 1. þm. Reykv. Friðrik Sophusson, varaformaður Sjálfstfl.
Það sem ég sagði hér áðan um þátttöku sjálfstæðismanna í eign þessa fyrirtækis var eftirfarandi. Heimamenn vildu fá að kaupa fyrirtækið hér um daginn. Þeir fengu ekki tækifæri til þess vegna þess að fyrirtækið var leigt einungis tveimur tímum eftir að það var lýst gjaldþrota. Þegar lagmetisiðjan Siglósíld var seld á sínum tíma vildu heimamenn einnig kaupa það fyrirtæki. Þeir vildu stofna almenningshlutafélag sem margir vel hugsandi og fram á við hugsandi menn í Sjálfstfl. hafa m.a. lagt grundvöllinn að og á ég þar við fyrrv. þm. úr Norðurl. v. Það virðist sem svo að þessir ágætu aðilar á Siglufirði hafi ekki fengið tækifæri til að kaupa þetta fyrirtæki ásamt þeim heimamönnum sem fengu loks að kaupa þar hlut í. Það kom a.m.k. þannig út að það voru einungis bæjarfulltrúar Sjálfstfl. eða þeir sem sátu í stjórn þess flokksfélags á staðnum. Það er nú staðreynd málsins. Að auki voru síðan eignaraðilar sem ekki voru heimamenn.