Sigló hf.
Föstudaginn 05. maí 1989

     Ólafur Þ. Þórðarson:
    Virðulegi forseti. Þar sem ætlunin er að átta sig á því hagræði sem ríkið hefur haft af sölu eigna til aðila úti í þjóðfélaginu þykir mér rétt að beina þeirri ósk til forseta að samhliða því sem sú athugun fari fram sem hér er óskað eftir verði kannað hver ávinningur ríkisins hafi orðið af sölu eftirtalinna eigna: hlutabréfa í Iðnaðarbankanum, hlutabréfa í Flugleiðum og hlutabréfa í Fjárfestingarfélagi Íslands sem Framkvæmdasjóður var látinn selja.
    Mér þykir eðlilegt til að fá meiri breidd í umræðurnar og þar með meira öryggi í niðurstöðuna að þetta komi einnig til umræðu. ( FrS: Og Landssmiðjan.)