Sigló hf.
Föstudaginn 05. maí 1989

     Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
    Virðulegi forseti. Það stoðar lítt fyrir forustu Sjálfstfl. í þessari umræðu að reyna að rugla saman annars vegar því sem fjármálaráðherrar Sjálfstfl. gerðu í sinni tíð, og ég gagnrýndi rækilega hér og kallaði því rétta nafni að gefa ríkisfyrirtæki í nafni einkavæðingar, og svo hins vegar þeim ákvörðunum sem skiptaráðandi tók fyrir nokkrum vikum síðan. Það eru tvö ólík mál og þjónar engu fyrir þingmenn Sjálfstfl. að reyna að rugla því saman. Ég hef engar sakir borið á skiptaráðanda í þessari umræðu, en hef hins vegar lýst þeirri skoðun minni að framkvæmd einkavæðingarstefnunnar hjá ráðherrum Sjálfstfl. hafi verið fólgið í því að gefa flokksgæðingum ríkisfyrirtæki.
    Ég vil hins vegar segja það fyrst minnst er á ákvarðanir skiptaráðanda að ég hefði talið eðlilegra áður en ákvörðun var tekin um að leigja fyrirtækið sömu aðilum að ræða við embættismenn fjmrn. um samskipti þeirra við fyrrverandi eigendur og þá sem nú fara með fyrirtækið, en það er annað mál.