Sigló hf.
Föstudaginn 05. maí 1989

     Eyjólfur Konráð Jónsson:
    Hæstv. forseti. Ég geri ráð fyrir að fyrirspyrjandi hafi átt við mig þegar hann nefndi fyrrv. þm. Norðurl. v. og áhuga minn á almenningshlutafélögum og aðstoð við heimamenn til þess að koma atvinnulífinu á traustan grundvöll þar sem það var mjög veikt fyrir. Við gerðum það allir þáv. þingmenn og ég held að þeir hljóti að gera það enn. Af eðlilegum ástæðum hef ég lítil afskipti haft af þessu síðustu tvö árin, en vissulega hafði ég það áður.
    Ég lýsi það ósatt með öllu að eitthvað hafi verið óeðlilegt við það að ríkið seldi þessa eign. Húsið var raunar hálfónýtt og það sáu menn ekki fyrr en byrjað var að rífa. Það var meira að segja rottuétið og músétið, til skammar og ekki reksturshæft. Það er líka rétt að tap fyrirtækisins í eigu ríkisins var oftast ef ekki alltaf langt umfram öll laun. Það hefði verið ódýrara að senda fólkinu launin heim. Við vorum að því allir þingmennirnir að reyna að hjálpa við að byggja upp atvinnulíf á Siglufirði eins og öðrum stöðum í kjördæminu. Enginn okkar skammast sín fyrir það. Það er okkar skylda að reyna að gæta atvinnuveganna.
    Þeir sem hér hafa talað, bæði hv. þm. Jón Sæmundur Sigurjónsson og hæstv. fjmrh., ættu að líta sér nær. Af hverju eru atvinnufyrirtækin á hausnum nema vegna þeirra stjórnarstefnu og aðgerða? Var það ekki í fréttum í dag að Kaupfélag Eyfirðinga, sem lengi hefur verið talið eitt af sterkustu fyrirtækjum landsins, væri með tap upp á einn fjórða úr milljarði.? Hvar er atvinnulífið statt í höndum þessara manna? Og hvað ætla þeir að gera til að bæta það? Hvað hafa þeir gert? Þeir ættu að líta sér nær. Við fáum þessa umræðu seinna og ég ætla svo sannarlega að taka þátt í henni.