Forseti (Guðrún Helgadóttir):
Svo er ástatt með þetta mál að þegar það skyldi koma til atkvæðagreiðslu að lokinni 2. umr. hér sl. föstudag hreyfðu nokkrir hv. þm. andmælum við formi þess, enda er þetta frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1987 ítarlegra og með nokkuð öðru sniði en fjáraukalög hafa verið fram að þessu. Forseti frestaði því atkvæðagreiðslunni og hefur látið kanna málið.
Niðurstaðan af því er sú að fjvn. hefur nú flutt brtt. á þskj. 1036, sem útbýtt var í dag, þar sem komið er til móts við athugasemdir hv. þm. En þar sem við erum nú stödd í atkvæðagreiðslu um þetta frv. og umræðum um það er lokið er ekki ráðrúm til að taka á dagskrá brtt. hér við 2. umr. Forseti mun því nú bera upp frv. eins og það liggur fyrir á þskj. 523 og taka síðan brtt. fjvn. til afgreiðslu við 3. umr. Frv. er ekki greinaskipt og verður því borið upp í einu lagi nema óskir berist um annað.