Frsm. félmn. (Hjörleifur Guttormsson):
Virðulegur forseti. Á þskj. 962 er að finna nál. um till. til þál. um tónmenntakennslu í grunnskólum frá félmn. Nál. er svohljóðandi:
,,Nefndin hefur fjallað um tillöguna á mörgum fundum og sendi hana til umsagnar. Svör bárust frá eftirtöldum: Félagi tónlistarkennara, fræðslustjóra Austurlandsumdæmis, fræðslustjóra Reykjanesumdæmis, fræðslustjóra Vesturlandsumdæmis, námsstjóra í tónmennt (menntamálaráðuneyti), Samtökum tónlistarskóla, skólastjóra Hafralækjarskóla í Aðaldal og Tónlistarskólanum í Reykjavík. Margar þessara umsagna eru ítarlegar og í þeim öllum er tekið jákvætt undir efni tillögunnar.
Nefndin mælir með því að tillagan verði samþykkt með breytingu sem flutt er á sérstöku þingskjali.``
Þessa brtt. er að finna á þskj. 963. Þar er lagt til að tillgr. orðist þannig:
,,Alþingi ályktar að fela menntmrh. að skipa nefnd til að athuga og koma með tillögur að samvinnu og samþættingu tónmenntakennslu í grunnskólum og tónlistarskólum landsins, með það fyrir augum
að efla og auka tónmenntakennslu í grunnskólum,
að koma á samvinnu milli grunnskóla og tónlistarskóla,
að athuga hvernig best verði staðið að menntun kennara á þessu sviði,
að það nám í tónlist, sem nemendur stunda utan lögboðins grunnskólanáms, geti í auknum mæli flust inn í húsnæði grunnskólanna,
að samnýta húsnæði og kennara til að draga úr kostnaði og gera tónlistarnám aðgengilegra fyrir nemendur.
Nefndin ljúki störfum fyrir árslok 1989.``
Að þessari afgreiðslu málsins standa allir fulltrúar í félmn.