Búminjasafn á Hvanneyri
Föstudaginn 05. maí 1989

     Danfríður Skarphéðinsdóttir:
    Virðulegi forseti. Aðeins örstutt athugasemd vegna þeirrar umræðu sem hér hefur orðið um þetta mál. Ég vil benda á það, sem reyndar hv. síðasti ræðumaður gerði, að þjóðminjalögin sem hafa verið afgreidd frá Nd. til Ed. gera ráð fyrir að stofnuð séu slík sérsöfn sem hér um ræðir, tæknisöfn af ýmsu tagi. Það þarf því ekki að setja um þau sérstök lög heldur er nóg að setja um þau stofnskrá. Ég vildi aðeins að þetta kæmi fram.