Búminjasafn á Hvanneyri
Föstudaginn 05. maí 1989

     Ólafur Þ. Þórðarson:
    Herra forseti. Ég vil að það liggi ljóst fyrir, þó vald forseta sé mikið, að þingið gerir ekki upp hug sinn í málum fyrr en við atkvæðagreiðslu í þinginu og væri vel ef hæstv. forseti gerði sér grein fyrir því. Hitt er aftur á móti fátítt ef forseti tekur ekki tillit til þess þegar flm. að nál. leggur fram málamiðlun í máli héðan úr ræðustól og telur að hann sé ekki umboðsmaður fyrir nefndina til að leggja fram slíka málamiðlun. Það eru út af fyrir sig sérstæð vinnubrögð hjá forseta og mér finnst þau lýsa mikilli fljótfærni og litlum skilningi á störfum þingsins.