Birgir Ísl. Gunnarsson:
Virðulegi forseti. Það er kunnara en frá þurfi að segja að verkfall kennara hefur nú staðið í fjórar vikur, við getum sagt nánast 4 1 / 2 viku því að helgi er fram undan. Það er afar erfitt ástand hjá þúsundum ungmenna sem eru í framhaldsskólunum, mikil hætta á því að dýrmætt námsár í ævi þessa unga fólks fari forgörðum ef ekki verður að gert. Auðvitað vonast allir til að þetta verkfall leysist og ég ætla ekki að gera launadeiluna efnislega að umræðuefni heldur það ástand sem skapast hefur í framhaldsskólunum vegna hennar.
Forráðamenn framhaldsskólanna og reyndar fulltrúar nemenda hafa tjáð sig í fjölmiðlum undanfarna daga. Ég ætla að leyfa mér að vitna af handahófi í ummæli nokkurra slíkra.
Þannig segir rektor Menntaskólans í Reykjavík, Guðni Guðmundsson, í Morgunblaðinu 3. maí að dragist lausn verkfalls kennara í HÍK fram yfir næstu helgi verði illviðráðanlegt að ljúka skólastarfi vetrarins og dragist verkfall lengur en til þriðjudags verði miklum vandkvæðum bundið að prófa og útskrifa stúdenta.
Sama kemur fram hjá skólameistara Menntaskólans á Laugarvatni í DV þann 3. maí. Hann segir: ,,Ef verkfallið leysist í þessari viku tel ég að mögulegt sé að ljúka stúdentsprófum fyrir mánaðamótin, en við þolum ekki að missa marga daga úr þessu ef það á að takast.``
Skólameistari Menntaskólans á Akureyri tekur í sama streng og segir í DV 3. maí, með leyfi forseta: ,,,,Ég reyni bara að hugsa sem minnst``, segir Jóhann, er hann var spurður hvernig málin vegna kennaraverkfallsins horfðu við honum þessa daga. ,,Ástandið er orðið svo yfirþyrmandi að maður sér ekki fram úr því.````
Nemendur hafa líka látið þetta mál til sín taka og lýst áhyggjum sínum yfir því hvernig fara muni nú á þessum vetri.
Vandamálið er tvíþætt. Það er annars vegar stúdentspróf eða önnur lokapróf frá framhaldsskólunum og svo færsla nemenda á milli bekkja. Raunar má bæta þriðja þættinum við, inntöku nýrra nemenda úr grunnskólum í framhaldsskóla. Þetta er orðin óþolandi óvissa og þess vegna er nauðsynlegt að taka þetta mál að mínu mati hér til umræðu á hv. Alþingi.
Ég vil áður en ég ber fram hinar ákveðnu spurningar til hæstv. menntmrh. segja sem mína skoðun að mér finnst að ýmsar yfirlýsingar hæstv. ráðherra, bæði hæstv. fjmrh. og hæstv. menntmrh., hafi ekki verið líklegar til að stuðla að lausn þessarar deilu. Þetta er viðkvæm deila. Tilfinningar í þessari deilu hafa risið hátt, en yfirlýsingar þessara hæstv. ráðherra hafa frekar að mínu mati orðið til þess að ýfa þessar deilur en lægja þær. Það hafa líka komið fram misvísandi yfirlýsingar hæstv. menntmrh. og fjmrh. í þessum málum, einkum á fundum með kennurum og nemendum sem sagt hefur verið frá í fjölmiðlum. En ég vil leyfa mér að beina eftirfarandi
spurningum til hæstv. menntmrh.:
1. Hvaða leiðir koma til greina varðandi útskrift stúdenta og annarra lokaprófsnemenda á þessu vori í framhaldsskólum og hvaða ákvarðanir hyggst menntmrh. taka í þeim efnum?
2. Hvaða ákvarðanir verða teknar um tilflutning nemenda milli bekkja í framhaldsskólum?
3. Hvað hefur menntmrh. gert til að stuðla að lausn verkfalls kennara og er ágreiningur milli menntmrh. og fjmrh. um lausn deilunnar?
Þessum spurningum vænti ég að hæstv. menntmrh. svari.