Ástandið í framhaldsskólunum
Föstudaginn 05. maí 1989

     Guðrún Agnarsdóttir:
    Virðulegi forseti. Ég tel mjög alvarlegt hve mikil harka er komin í kjaradeilur BHMR og ríkisvaldsins. Þó að ríkisvaldið og fjmrh. telji sig hafa lítið svigrúm til að ganga að kröfum BHMR vil ég átelja harðlega þann hroka og ósveigjanleika sem einkennt hefur framkomu hæstv. fjmrh. og fulltrúa ríkisvaldsins. Það hefur án efa stuðlað að því að hleypa hörku í málið.
    Annar þáttur þessarar kjaradeilu er þó sýnu alvarlegri og líklegur til að draga dilk á eftir sér. Þar lýsi ég einnig fullri ábyrgð á hendur hæstv. fjmrh. Sá þáttur varðar tilraunir hæstv. ráðherra til að deila og drottna. Þetta hefur hann gert með þeim hætti að sá fræjum tortryggni milli langskólagengins fólks og verkafólks. Þessi fræ hafa nú þegar borið ávöxt þannig að fleyg hefur verið skotið í samstöðu launafólks sem var þó ekki nægilega mikil fyrir, því miður, og gjá sem auðvelt virðist að mynda er þegar orðin milli þeirra sem ættu að standa saman. Þessi þróun er afar hættuleg og mér finnst óskiljanlegt hvernig hæstv. fjmrh. getur varið þetta frumkvæði sitt.
    Vandi framhaldsskólanema er mikill, ekki síst þeirra sem hafa þurft að þola ítrekaðar tafir á námsferli sínum vegna þess að stjórnvöld hafa tregðast við um margra ára skeið að viðurkenna mikilvægi og lykilhlutverk kennarastéttarinnar. Þetta hafa þau leyft sér að gera þrátt fyrir niðurstöðu hverrar skýrslunnar á fætur annarrar sem undirstrika að góður skóli verður hvergi rekinn án góðra kennara sem una hag sínum.
    Ég skora á ríkisstjórnina og þá ekki síst á hæstv. ráðherra Alþb., hæstv. fjmrh. og hæstv. menntmrh., að beita sér fyrir því að gefa fulltrúum ríkisvaldsins umboð til að ganga að samningsgerð með meiri sveigjanleika, opnari huga og betri vilja til að finna lausn á þessari kjaradeilu sem þegar hefur unnið skólastarfi í landinu, nemendum og kennarastéttinni mikið tjón og jafnvel til frambúðar. Ég lýsi ábyrgð á hendur þeim.