Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
Virðulegi forseti. Ég verð að leiðrétta það sem kom fram hjá hv. þm. Guðrúnu Agnarsdóttur frekar en Kristínu Halldórsdóttur, má vera að það hafi verið hjá hv. þm. Kristínu Halldórsdóttur, að eingöngu hafi verið ræðst við í þessari deilu í tíu klukkustundir. Það er að vísu rétt að formlega bókaðir fundir hjá sáttasemjara hafa ekki verið lengur samtals en sem því nemur, en það hefur verið ótrúlegur fjöldi viðræðufunda af ýmsu tagi, bæði milli samninganefndar ríkisins og samninganefndar BHMR, á undanförnum vikum, það hefur verið mikill fjöldi óformlegra funda og ef það ætti að fara að leggja saman klukkustundir allra þessara funda yrðu þær örugglega frekar taldar í hundruðum en í tugum. Það var hins vegar mat sáttasemjara að það væri vænlegra að láta viðræðurnar fara fram utan hinna formlegu viðræðufunda, bókaðra funda, en þar.
Hæstv. forsrh. hefur svo síðan látið það koma hér skýrt fram, og það er nauðsynlegt að það sé afdráttarlaust, að það er líka rangt hjá hv. þm. Kvennalistans að innan ríkisstjórnarinnar hafi verið rætt um að setja lög í þessari deilu.
Að lokum vil ég svo segja að það er í raun og veru ekki hægt að draga aðra ályktun af málflutningi þingmanna Kvennalistans hér í dag en þá að Kvennalistinn sé þeirrar skoðunar að ríkisvaldið eigi jafnvel að leysa þessa kjaradeilu með því að borga félögum í BHMR allmiklu hærri upphæðir við þessa samningagerð en öðru launafólki hefur verið borguð. Ef það er misskilningur hjá mér væri æskilegt að það væri leiðrétt nú eða síðar því að ég væri vissulega þakklátur fyrir ábendingar frá Kvennalistanum um einhverjar aðrar leiðir til að leysa þessa deilu en borga margfalt hærri upphæðir til þeirra sem nú eiga í kjaradeilu en þeirra sem þegar hafa samið.