Ástandið í framhaldsskólunum
Föstudaginn 05. maí 1989

     Þórhildur Þorleifsdóttir:
    Virðulegur forseti. Ég tel með öllu ófært að þessi umræða sé stöðvuð á þennan hátt, sérstaklega þegar séð hefur verið í gegnum fingur við nokkra til þess að nota tíma umfram ákveðinn ræðutíma. Það var beint mjög ákveðnum spurningum til Kvennalistans og ég vil fara fram á það við virðulegan forseta að fulltrúar Kvennalistans fái að svara þessum spurningum að einhverju marki.