Birgir Ísl. Gunnarsson:
Hæstv. forseti. Mér þykir rétt að gefa dálítið nákvæmari lýsingu á því hvað gerðist og hvernig undanfari þessarar umræðu var. Ég náði ekki til virðulegs forseta í morgun og ræddi þá við skrifstofustjóra Alþingis um að það væri beiðni sem þingflokkur Sjálfstfl. stæði á bak við að fram færi hér ótakmörkuð umræða og þannig var þetta mál lagt fyrir. Síðan ræddum við saman, ég og hæstv. forseti Sþ. Hún spurði hvort möguleiki væri á því að þessi umræða gæti farið fram á morgun frekar en í dag þar sem mikið væri á dagskrá í dag. Ég kvaðst mundu hugsa það og við mundum síðan ræða saman þegar þing byrjaði kl. 12. Við ræddum síðan saman hér við forsetastól og ég gerði mér grein fyrir því að það var hér mikil og erfið dagskrá og ég sagði við hæstv. forseta að eftir atvikum mundum við sætta okkur við hálftíma umræðu. En upphaflega beiðnin var um ótakmarkaðan tíma.