Dagvistarmál fatlaðra barna
Föstudaginn 05. maí 1989

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Áður en lengra verður haldið vil ég upplýsa hv. þm. um að leitast verður við að reyna að tæma dagskrá þessa fundar en taka síðan fyrir í Sþ. í fyrramálið kl. 10 þær skýrslur sem óræddar eru. Ég vil þess vegna leita til hv. þm. að vera mér til aðstoðar um að ljúka afgreiðslu þeirra mála sem liggja fyrir þessum fundi svo að ekki þurfi að eyða tíma morgundagsins í það.