Þingfararkaup alþingismanna
Föstudaginn 05. maí 1989

     Frsm. fjh.- og viðskn. (Eiður Guðnason):
    Herra forseti. Fjh.- og viðskn. þessarar hv. deildar hefur fjallað um frv. það sem hér um ræðir. Nál. liggur fyrir á þskj. 1021. Nefndarmenn allir eru sammála um að mæla með því að frv. verði samþykkt óbreytt. Hv. þm. Danfríður Skarphéðinsdóttir sat fund nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og hún er samþykk þessu áliti nefndarinnar sem leggur til, eins og ég áður sagði, að frv. verði samþykkt óbreytt.