Erfðalög
Föstudaginn 05. maí 1989

     Frsm. allshn. (Jón Kristjánsson):
    Herra forseti. Frv. til laga um breytingu á erfðalögum hefur áður verið afgreitt hér frá þessari hv. deild. Við athugun í Ed. þótti rétt að orða 16. gr. frv. enn nákvæmar en gert var þó að búið væri að breyta henni áður. Allshn. hefur komið saman og litið á 16. gr. og sér ekki ástæðu til þess að gera athugasemdir við þetta orðalag og leggur til að frv. verði samþykkt eins og það nú liggur fyrir.