Stefán Guðmundsson:
Virðulegi forseti. Ég kem hér upp til þess að leiðrétta það sem kom fram í máli hv. formanns og framsögumanns nefndarinnar, þar sem hann vitnaði í ummæli og var með bréf um frá Vélaverkstæði Sigurðar Sveinbjörnssonar. Það var fróðlegt og sjálfsagt hefur flestallt verið rétt þar. En þó er það eitt mál sem ég veit um vegna þess að það hefur komið inn á borð hjá mér, ef svo mætti segja, en það varðar skipið Geisla. Hann vék þar orðum að Byggðastofnun og sagði að það nýjasta væri að Byggðastofnun hefði synjað fyrirgreiðslu til þess skipasmíðaverkefnis sem unnið er hjá Skipasmíðastöðinni í Stykkishólmi. Hér er farið rangt með. Byggðastofnun hefur afgreitt þetta mál á jákvæðan hátt, samþykkt það og afgreitt þetta mál á jákvæðan hátt. Hæstv. iðnrh. er sjálfsagt kunnugt um það. Hann liðkaði mjög til í þessu máli þegar það var að sigla í strand og það er mjög ómaklegt að segja það að Byggðastofnun hafi ekki komið þar til því að hún leysti þetta mál algjörlega. Það vil ég að komi hér skýrt fram.
Hv. þm. Árni Gunnarsson náttúrlega gjörþekkir þessi mál sem stjórnarmaður í einu af þessum fyrirtækjum sem núna hafa orðið um sinn að horfa á eftir fjölda sinna starfsmanna frá störfum vegna þess að verkefni hafa ekki verið til staðar hér heima. Menn hafa farið með þessi verkefni í allt of ríkum mæli úr landi. Ég held að ég muni það rétt að ég hafi einhvers staðar séð það að Slippstöðin á Akureyri hafi sagt frá því einmitt að það hafi ekki verið þar færri starfsmenn sl. 10 ár. Ég held að það séu nokkrir tugir manna sem hefur verið sagt upp störfum þar undanfarið. Við þurfum ekki að fara langt. Við vitum hvernig komið er fyrir Stálvík og svona gætum við haldið áfram.
Af hverju? Hv. þm. fór hér inn á útboðin sem er alveg hárrétt hjá honum. Ég veit að þar er rétt sagt frá. En af hverju er þetta á þennan hátt? Það er vegna þess, eins og ég sagði þegar ég talaði fyrir þessari þáltill. minni fyrr í vetur, að menn verða auðvitað að fara eftir og virða eðlilega viðskiptahætti í þessum efnum, en það er bara ekki gert. Þess vegna lagði ég svo ríka áherslu á það við hæstv. ríkisstjórn að hún gengi fram í þessu máli og ég las hér upp bréf sem hæstv. núv. forsrh. Steingrímur Hermannsson skrifaði fyrir nokkru síðan og voru þar tilmæli til allra þessara aðila um hvernig staðið skyldi að þessum málum. Það var skynsamlegt bréf en því miður var því ekki fylgt nægjanlega eftir. Ef slíkt bréf væri skrifað í dag væri ég mjög ánægður og ég er sannfærður um það að þeir sem í þessari atvinnugrein starfa, ekki aðeins fyrirtæki heldur ekki síður starfsfólkið, mundu vera þakklátir fyrir slíkt. Það mundi bara leysa að stórum hluta þessi mál. Hins vegar er það rétt, eins og kom fram hér hjá hæstv. iðnrh., að auðvitað þarf að skoða þessi mál til lengri tíma.
Það þarf enginn að vera hissa á því í sjálfu sér að íslenskar skipasmíðastöðvar eigi erfitt með að keppa á alþjóðlegum mörkuðum um þessi verk. Við getum bara skoðað það hvernig það er, eins og t.d. sl. vetur,
fyrir okkar stöðvar að keppa við erlendar stöðvar í slíku veðurfari, þegar menn þurfa að standa af sér veður undir skipsskrokkunum. Það gengur náttúrlega ekki. Og það er alveg með ólíkindum, og ég endurtek það sem ég sagði hér í vetur þegar ég tala um þetta mál, að það skuli engin skipasmíðastöð hér á Íslandi vera þannig í stakk búin að hún geti tekið skipin okkar undir þak og menn geti unnið eins og sæmandi er fiskveiðiþjóð eins og okkur Íslendingum. Það er auðvitað alveg fráleitt að svo skuli að verkum staðið. Ég held að það hefði verið skynsamlegra, eins og komið er í atvinnumálum í þessari grein, í stað þess að segja fólki upp í stórum stíl og borga því atvinnuleysisbætur, að láta þetta fólk vinna við það að byggja yfir stöðvarnar og búa þær þannig betur í stakk til þess að keppa við erlendar stöðvar. Ég held að það hefði verið nær.