Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson):
    Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir till. til þál. um samning milli Grænlands/Danmerkur, Íslands og Noregs um loðnustofninn á hafsvæðinu milli Grænlands, Íslands og Jan Mayen.
    Með þessari till. er óskað eftir staðfestingu Alþingis til heimildar ríkisstjórnar að gera fyrir Íslands hönd samning milli Íslands, Grænlands og Noregs um loðnustofninn á hafsvæðinu milli Grænlands, Íslands og Jan Mayen. En samningurinn er birtur sem fylgiskjal með þáltill.
    Samningur, sem hér liggur fyrir, leysir deilu milli hlutaðeigandi landa um skiptingu loðnustofnsins á svæðinu milli Grænlands, Íslands og Jan Mayen. Frá árinu 1980 hefur gilt samkomulag milli Íslands og Noregs um að skipta veiðum á stofninum milli sín þannig að 85% falli í hlut Íslands og 15% í hlut Noregs. Hins vegar var Grænland ekki bundið af því samkomulagi. Og t.d. á árinu 1988 veiddu Færeyingar samkvæmt heimild grænlensku landsstjórnarinnar 48 þús. lestir af loðnu innan grænlenskrar lögsögu.
    Á samningafundi milli aðila í Osló dagana 18.--20. janúar 1989 náðist samkomulag um samningsdrögin sem hér liggja fyrir. Samkvæmt 2. gr. samningsins skal reynt að ná samkomulagi um leyfilegan hámarksafla fyrir hverja vertíð. Ef ekki næst samkomulag mun Ísland ákveða hámarksaflann. Sams konar ákvæði er að finna í samkomulagi á milli Íslands og Noregs frá árinu 1980.
    Samkvæmt 3. gr. samningsins skiptist aflinn þannig að 78% falla í hlut Íslands, 11% í hlut Grænlands og 11% í hlut Noregs. Íslenskum og norskum skipum verður heimilt að veiða loðnu í lögsögu Grænlands skv. 7. gr. og íslenskum skipum og skipum með leyfi grænlenskra stjórnvalda heimilt að veiða í lögsögu Jan Mayen skv. 8. gr.
    Um veiðar í íslenskri lögsögu er fjallað í 6. gr. samningsins. Heimildir eru takmarkaðar við norsk skip og grænlensk skip, þ.e. skip sem eru skráð í Grænlandi og fullnægja skilyrðum grænlenskra fiskveiðilaga um eignaraðild. Íslensk stjórnvöld geta einnig veitt fiskiskipum af öðru þjóðerni sem fengið hafa grænlensk fiskveiðileyfi veiðiheimildir og í viðræðum milli aðila var gengið út frá því að færeysk skip, sem hafa leyfi grænlenskra stjórnvalda til veiða á þeirra hlut, fái heimild til veiða innan íslenskrar lögsögu. Veiðiréttindin takmarkast við svæðið fyrir norðan 64. gráðu og 30. mín. norðlægrar breiddar og tímabilið frá 1. júlí til 15. febr. á hverri vertíð. Ef staðfestur verður af viðkomandi stjórnvöldum mun samningurinn gilda til þriggja ára frá og með 1. júlí 1989.
    Ríkisstjórnin hefur haft samráð við fulltrúa hagsmunaaðila í sjávarútvegi um gerð þessa samnings og kynnt drögin í utanrmn. Alþingis.
    Virðulegi forseti. Ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði málinu vísað til utanrmn. og 2. umr.