Guðmundur H. Garðarsson:
Virðulegi forseti. Þetta var nú óþarfa athugasemd. Ég ætlaði ekki að fara að flytja hér neina langa ræðu. Ég vil aðeins út af þeirri umræðu sem hér hefur farið fram taka undir flest af því sem hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson sagði. Ég vil bæta hér við einu atriði sem mér finnst ekki hafa komið nægilega skýrt fram í þessari umræðu og beina því sérstaklega til hæstv. forsrh. Ég kann vel að meta það mat hans á stöðu Íslands gagnvart Evrópubandalaginu sem fram hefur komið undanfarið og einnig það að hann skuli hafa gert sér grein fyrir því núna, vil ég segja, loksins á síðustu árum að Íslendingar eiga góða bandamenn í Vestur-Evrópu. Það er nefnilega þannig að það var ekki nein ný uppgötvun núna síðustu árin að við þyrftum ekki endilega að leita til Brussel til að fjalla um málefni Íslands þegar við ræddum okkar sérstöðu sem vestur-evrópsk þjóð. Við sem höfum fjallað um þessi samskiptamál hér áður fyrr og vitum þetta. Ég minni á það að þegar við vorum að heyja okkar, ég vil segja stríð fyrir þeirri tilveru okkar sem byggist á fiskveiðum við Ísland á árunum 1974--1978, þá kom mjög fljótt í ljós í þeirri baráttu að við áttum mjög öfluga bandamenn í Vestur-Þjóðverjum. Vestur-Þjóðverjar hafa verið Íslendingum mjög hliðhollir alla tíð, bæði í sambandi við okkar fiskveiðilögsögu, sem og í sambandi við okkar mál innan Evrópubandalagsins. Ég vil bara árétta þetta þannig að ekki sé í þingtíðindum sú túlkun ein að ferðir hæstv. forsrh., sem ég met og virði, og viðræður við Kohl kanslara hafi ráðið úrslitum um afstöðu Vestur-Þjóðverja til Íslendinga. Þeir hafa á síðustu áratugum verið sérstaklega góðir bandamenn okkar í mjög mörgum málum. Þetta vildi ég láta koma fram til þess að það færi ekki á milli mála.
Ég vil síðan endurtaka það sem kom fram hjá hv. þm. Eyjólfi Konráð Jónssyni að við Íslendingar þurfum ekki að fjalla um þessi mál gagnvart Evrópubandalaginu með þeim hætti sem gert hefur verið af hálfu ýmissa hæstv. ráðherra og þar á meðal utanrrh. og yfirleitt margra alþýðuflokksmanna, að við þurfum að leita eitthvað sérstaklega undir mat eða álit embættismanna í Brussel. Við eigum bandamenn, við eigum stuðningsmenn við okkar málstað á æðstu stöðvum víða í höfuðborgum Vestur-Evrópu og því hefur hæstv. forsrh. áttað sig á og unnið samkvæmt því. Það eru þeir aðilar sem við eigum að ræða fyrst og fremst við en ekki embættismennirnir í Brussel.