Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson):
Virðulegi forseti. Örfáar athugasemdir. Hv. þm. Valdimar Indriðason furðaði sig á því hvers vegna málið hefði ekki verið fyrr tekið á dagskrá. Svarið við því er að það er margsinnis búið að vera á dagskrá en hefur orðið að víkja af dagskrá fyrir fyrirferðarmiklum kröfum stjórnarandstæðinga, stundum um utandagskrárumræður.
Annað mál. Mér þykir leitt ef hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson, sem öðrum mönnum fremur er mikill áhugamaður um hafréttarmálefni, telur að það ríki áhugaleysi um þau mál í utanrrn. eða hjá utanrrh. Svo er ekki. Þegar hefur verið vikið að Rockall-máli, bréfaskriftum forsætisráðherra Íslands og Bretlands, og ég heyrði ekki betur en hv. þm. væri sæmilega ánægður með hvernig á því máli hefði verið haldið, enda átti hann hlut að því. Að því er varðar áform um fundi embættismanna um norðurslóðir er þar því til að svara að ástæðan fyrir því að næsti fundur hefur enn ekki verið haldinn stafar ekki af áhugaleysi heldur er það vegna þeirra upplýsinga sem ég hef þegar gefið hv. þm. í umræðum um skýrslu utanrrh., að við bíðum þar enn niðurstaðna íslenskra vísindamanna sem leggja á til grundvallar í þeim viðræðum.
Menn geta auðvitað haft skiptar skoðanir á Efnahagsbandalaginu á allan máta en menn verða að fara rétt með staðreyndir, og ég vona að hv. þm. leiðrétti það sem hann sagði, að hann kannaðist ekki við hina sameiginlegu fiskveiðistefnu Evrópubandalagsins. Það kannast allir menn við. (Gripið fram í.) Það kannast allir menn við. Það er laukrétt að það hefur engin ein þjóð lýst kröfum um veiðiheimildir innan íslenskrar fiskveiðilögsögu utan Spánverjar og þeir hafa gert það innan Evrópubandalagsins en ekki komið þeim kröfum enn á framfæri við okkur með formlegum hætti.
Það er líka laukrétt að af okkar hálfu, bæði hæstv. núv. forsrh. og af minni hálfu, hefur verið lögð á það áhersla að ræða við pólitíska forustumenn Evrópubandalagsríkja, forsætisráðherra, utanríkisráðherra og fleiri. ( Forseti: Ég bið hæstv. utanrrh. afsökunar en þessum fundi verður að ljúka og það er ljóst að honum verður að fresta. Það var búið að tilkynna að honum lyki kl. korter fyrir eitt og við það verður að sitja þannig að ég vil biðja hæstv. ráðherra að upplýsa forseta um hvort hann getur lokið máli sínu nú eða hvort umræðunni verður að fresta.) Ég skal ljúka máli mínu nú, virðulegi forseti, aðeins ef mér leyfist að ljúka þeirri setningu sem ég var svona nokkurn veginn að ljúka. Viðræður við þessa menn, hina pólitísku forustumenn bandalagsins, um sérstöðu Íslands og málstað Íslendinga eru til þess að skapa pólitískan skilning á stöðu okkar en þær breyta ekki því að tollamálin heyra undir kommissjónina í Brussel. Tollurinn, hinn ytri tollur Efnahagsbandalagsins er hinn sameiginlegi tekjustofn Evrópubandalagsins, og við komumst ekki fram hjá því. Ef við viljum fá viðskiptafríðindi frekar í framhaldi af okkar fríverslunarsamningi, komumst við ekki fram hjá því að eiga um þau mál við
Evrópubandalagið sem slíkt og kommissjónina í Brussel þó að sjálfsögðu beri jafnframt að leggja áherslu á að skapa pólitískan skilning á stöðu okkar með viðræðum við pólitíska forustumenn.
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Nefndarstörf byrja á mánudaginn. Ég man ekki hvort maður er boðaður á fyrsta fundinn kl. átta eða hálfníu um morguninn. Það var talað um það að byrja árla um morguninn. Síðan verður fram haldið nefndarstörfum allan daginn, sem ýmist er boðað til í ráðuneytum eða af þinginu og nú hefur mér borist fundarboð í menntmn. kl. hálfníu um kvöldið. Þessi fundur er boðaður án alls samráðs við stjórnarandstöðu og þá sem í nefndinni sitja. Ég vil óska eftir því að hæstv. forseti geri þingdeildarmönnum grein fyrir því hvernig þinghaldið er hugsað og ég geri fyllstu athugasemd við fundarboð af þessu tagi og vil mælast til þess við hæstv. forseta að hann sjái um að nefndarstörf geti farið fram á skikkanlegum tíma. Allur morgunninn er laus og ég held að það sé alveg óhjákvæmilegt að reyna að skipuleggja nefndarstörfin svo að þingmenn geti starfað á venjulegum vinnudegi að nefndarstörfum og við umræður hér í þinginu, en þeim gefist svo kostur á því að undirbúa sig fyrir nefndarfundi og umræður að kvöldinu. Því að það er ekki einungis fyrir okkur í stjórnarandstöðunni --- við fáum ekki sérstaka legáta eða sendiherra ofan úr ráðuneytum til þess að segja okkur hvað við eigum að gera eins og algengt er orðið með stjórnarþingmenn heldur verðum við sjálfir að reyna að ráða fram úr málefnunum sem fyrir nefndirnar komu.