Fundarboð í nefndum
Laugardaginn 06. maí 1989

     Valgerður Sverrisdóttir:
    Hæstv. forseti. Ég vildi bara að það kæmi fram að það var talað um það á nefndarfundi í hv. menntmn. að nefndin kæmi saman að kvöldlagi í næstu viku og ræddi þá ákveðið mál sem við höfum til umræðu í nefndinni. Það gæti verið að hv. 2. þm. Norðurl. e. hafi verið farinn af fundi eða ókominn þegar þessi umræða fór fram. Ég man það ekki. En það hreyfði enginn af nefndarmönnum mótmælum við þessu.