Frsm. 2. minni hl. félmn. (Jón Sæmundur Sigurjónsson):
Virðulegi forseti. Áður en ég sný mér að nál. 2. minni hl. félmn. vil ég segja örfá orð um langa og ágæta ræðu hv. 17. þm. Reykv. Geirs H. Haarde. Ég þakka honum góð orð í minn garð. Burt séð frá ýmsum skylduæfingum stjórnarandstöðumanns sem komu fram í hans ræðu held ég að þetta sé ein sú besta gagnrýni sem ég hef heyrt á stjfrv. sem fram hefur verið lagt hér á þingi. Hann tók það sem honum fannst til álita koma, punkt fyrir punkt, ,,dispúteraði`` það á mjög gagnrýninn hátt, að vísu var ég sjaldnast sammála honum í hans gagnrýni, en ég held að þetta hafi verið uppbyggileg og jákvæð gagnrýni. Ég held að þingmaðurinn hafi ekki komist fram hjá því í allri sinni gagnrýni að í raun er hann sammála framlögðu frv. þó hann sjái á því ýmsa agnúa. Og vil ég þá snúa mér að áliti 2. minni hl. félmn.
Nefndin hefur fjallað um frv. og borist um það fjöldi umsagna, auk skýrslu frá félmrn. Í skýrslunni er grg. um kynningarfundi ráðuneytisins um húsbréf og vaxtabætur með 17 aðilum á vinnumarkaði og fleirum, minnisblað um almenna húsnæðislánakerfið, töflur yfir útlán Húsnæðisstofnunar og samanburður við Noreg, minnisblöð um húsbréf, vaxtabætur, greiðslubyrði og afföll, álitsgerð sérfræðinganefndar um áhrif húsbréfakerfis á fasteigna- og fjármagnsmarkað og athugun Félagsvísindastofnunar á högum umsækjenda um lán hjá Húsnæðisstofnun ríkisins.
Þá bárust nefndinni umsagnir frá eftirtöldum: Húsnæðisstofnun ríkisins, Þjóðhagsstofnun, Seðlabanka Íslands, Húseigendafélaginu, Félagi fasteignasala, Kaupþingi hf., Verktakasambandi Íslands, Fasteignamati ríkisins, Sambandi almennra lífeyrissjóða, Landssambandi lífeyrissjóða, Vinnumálasambandi samvinnufélaganna, Alþýðusambandi Íslands, Verkamannasambandi Íslands, Landsssambandi iðnaðarmanna, Iðju, félagi verksmiðjufólks, bæjarstjórn Hafnarfjarðar og frá fimm stjórnarmönnum í Húsnæðisstofnun ríkisins.
Á fund nefndarinnar komu Pétur H. Blöndal frá Kaupþingi, Sigurður B. Stefánsson frá Verðbréfamarkaði Iðnaðarbankans, Gunnar Helgi Hálfdánarson frá Fjárfestingarfélaginu, Ásgeir Daníelsson frá Þjóðhagsstofnun, Haraldur Sumarliðason, Þórleifur Jónsson og Guðlaugur Stefánsson frá Landssambandi iðnaðarmanna, Björn Þórhallsson viðskiptafræðingur, Ásmundur Hilmarsson frá ASÍ og Bjarni Bragi Jónsson og Eiríkur Guðnason frá Seðlabanka Íslands.
Með nefndinni starfaði svo mestallan tímann Yngvi Örn Kristinsson, hagfræðingur í Seðlabanka Íslands.
2. minni hl. nefndarinnar leggur til að frv. verði samþykkt með breytingum sem fluttar eru á sérstöku þskj. Breytingar þessar eru fyrst og fremst orðalagsbreytingar, en þó eru lagðar til tvær efnisbreytingar. Í fyrsta lagi er um að ræða breytingu við m-lið 4. gr., þ.e. 62. gr. laganna um Húsnæðisstofnun ríkisins, sem felur í sér að auk þess sem húsbréfadeild geri tillögu til félmrh. um
verðtryggingarskilmála, endurgreiðsluform, lánstíma og vexti í hverjum verðbréfaflokki geri húsbréfadeild einnig tillögu til félmrh. um heildarfjárhæð í hverjum verðbréfaflokki. Með þessu er gert ráð fyrir að ríkisstjórnin geti betur fylgst með því að rekstur húsbréfakerfisins sé í samræmi við sett markmið í efnahagsmálum.
Í öðru lagi er gildistíma laganna breytt á þann veg að þau taki gildi 15. nóv. 1989 í stað 1. sept. 1989.
2. minni hl. vill leggja á það áherslu að félmrh. hefur ákveðið að skipa nefnd sem hafi það verkefni að fylgjast með undirbúningi að framkvæmd laganna og gera, ef nauðsyn krefur, tillögur um breytingar áður en lögin taka gildi þann 15. nóv. nk.
Af gefnu tilefni og umræðum í nefndinni um hlutverk húsbréfadeildar og yfirstjórn hennar og vegna þess að í rökréttu framhaldi af því er talað í næstu lagagreinum einungis um húsbréfadeild, sem sagt um hlutverk hennar nánar, vill nefndin leggja á það áherslu að það er skilningur hennar að b-liður 4. gr., þ.e. 51. gr. laganna, taki af öll tvímæli um það að yfirstjórn húsbréfadeildar sé í höndum húsnæðismálastjórnar og að allar ákvarðanir deildarinnar séu háðar samþykki þeirrar yfirstjórnar.
Með þessu áliti er sérprentað samkomulag um húsnæðismál milli ríkisstjórnarinnar og Kvennalistans. Undir þetta álit skrifa Guðrún Helgadóttir, Jón Kristjánsson og Jón Sæmundur Sigurjónsson.
Sjaldan eða a.m.k. ekki eftir að ég kom á Alþingi hef ég orðið vitni að því að nokkurt frv. hafi hlotið jafngóðan undirbúning og það frv. sem hér er lagt fyrir. Nú er komið á annað ár frá því að þetta frv. var lagt í vinnslu. Það kom fyrst til undirbúningsnefndar sérfræðinga sem skiluðu eftir starf sitt mikilli skýrslu þar sem var sérstök áhersla m.a. lögð á áhrif húsbréfakerfisins á fasteigna- og fjármagnsmarkaðinn, einmitt það sem gagnrýnendur þessa kerfis hafa lagt áherslu á að skorti í umfjöllun um þetta frv. Það var í öðru lagi lagt fyrir nefnd fulltrúa allra stjórnmálaflokka sem tóku sér drjúgan tíma við athugun og undirbúning frv. þar sem flestallir fulltrúarnir lýstu sig samþykka framlegð frv., að vísu með hinum og þessum fyrirvörum eins og gerist og gengur, og aðeins tveir, að vísu ekki fulltrúar
stjórnmálaflokkanna, nefndarmanna lýstu sig mótfallna framlegð slíks frv., þ.e. húsbréfakerfis, vegna þess að þeir vildu lappa upp á núverandi kerfi sem ég held að flestallir og stór meiri hluti landsmanna sé sannfærður um að sé genginn sér til húðar fyrir löngu.
Eftir að þessi nefnd hafði einnig skilað af sér stóru og miklu áliti í formi þykkrar skýrslu hefur þetta frv. fengið ríkulega kynningu hjá fjölda aðila í þjóðfélaginu og mér er næst að halda að ekkert frv. hafi verið jafnvel kynnt. Það má vera að frv. um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga hafi fengið jafngóða kynningu, en ég held að ekkert frv. hafi betur verið kynnt meðal allra viðkomandi aðila í þjóðfélaginu áður en það var síðan lagt fram hér á Alþingi.
Eins og hv. 17. þm. Reykv. lýsti yfir áðan höfum
við átt góða samvinnu í félmn. um þetta frv. Ég held að það hafi fengið þar nokkuð góða umfjöllun. Við höfum haldið marga fundi þar sem við höfum rætt um málin fram og aftur. Við höfum fengið fjölda sérfræðinga á okkar fund. Við höfum haft fjölda álita sem hafa stutt okkur í okkar umræðum. Þannig er ekki hægt að segja að þetta frv. hafi ekki fengið umfjöllun. Það hefur fengið nákvæman undirbúning, það hefur fengið góðan undirbúning og það hefur fjöldi fólks komið nálægt þessu máli. En það er ekki búið og gert með það, heldur hefur sérstaklega verið frestað gildistöku þessara laga til að enn og aftur geti nefnd komið nálægt þessu máli og fylgst með undirbúningi að framkvæmd þessara laga og henni er ætlað, ef henni þykir svo rétt vera, að hún geti lagt fram brtt. ef hnökrar koma upp í undirbúningnum. Þetta held ég að sé mjög óvenjulegur framgangsmáti í sambandi við samþykkt laga á Alþingi. Bæði í bak og fyrir held ég að megi segja að þetta frv. fái betri undirbúning en flestöll önnur frv. sem ég veit um að hafi komið inn á þing.
Ég minntist á áðan að í lok nál. sé prentað samkomulag um húsnæðismál milli ríkisstjórnarinnar og Kvennalista og vil ég koma aðeins að því. Það er vissulega viss hætta á því þegar nýtískulegu og gjörbreyttu húsnæðislánakerfi er komið á sem leggur markaðsvexti til grundvallar að hið félagslega húsnæðislánakerfi hverfi í skugga. Það ber því brýna nauðsyn til að hið félagslega húsnæðiskerfi sé styrkt í leiðinni. Það er ekki svo að skilyrði Kvennalistans varðandi þetta samkomulag hafi verið á þá leið út í hött að alveg eins hefði verið hægt að fara fram á úrbætur í vegamálum, þó þær séu vissulega nauðsynlegar. Það verður að skoða þessi mál í samhengi. Það er skynsamlegt að skoða þessi mál í samhengi og það var gert með þessu góða samkomulagi. Samkomulagið eins og það er prentað hér í textanum hljóðar svo:
,,Athuganir innan ríkisstjórnarinnar og viðræður við Kvennalistann hafa leitt til þeirrar niðurstöðu að samþykkt frv. til laga um húsbréfakerfi verði tengt húsnæðismálum í stærra samhengi [og ég held að ég hafi fært rök að því að það sé skynsamleg niðurstaða].
Samkomulag er um eftirfarandi:
1. Skipan nefndar á vegum félmrh. til að endurskoða hinn félagslega hluta húsnæðiskerfisins. Nefndin skili niðurstöðu fyrir 1. nóv. n.k. Hlutverk nefndarinnar er að leggja fram tillögur um endurbætur á fyrirkomulagi lánveitinga til félagslegra íbúðabygginga með það fyrir augum að einfalda lánafyrirkomulag og auka skilvirkni félagslega íbúðalánakerfisins. Nefndinni er falið að gera tillögur um breytt fyrirkomulag á stjórnun og úthlutun á félagslegri aðstoð í húsnæðiskerfinu. Jafnframt er nefndinni falið að gera tillögur um framkvæmd ráðstafana og leita leiða til að auka framboð leiguhúsnæðis og til að jafna húsnæðiskostnað leigjenda til samræmis við húseigendur.
2. 600 millj. kr. raunaukningu á framkvæmdafé til félagslega hluta íbúðakerfisins. Á árinu 1989 verði
100 millj. kr. raunaukning á framlögum auk þess sem felst í bréfi ríkisstjórnarinnar til Alþýðusambandsins í tengslum við kjarasamninga 1. maí 1989. Á árinu 1990 verði svo 500 millj. kr. raunaukning framkvæmdafjár.
3. Vextir á lánum, sem úthlutað hefur verið úr Byggingarsjóði ríkisins, verði ekki hækkaðir þegar húsbréfakerfið kemst í framkvæmd.
4. Þingflokkur Kvennalistans mun taka þátt í undirbúningi gildistöku húsbréfakerfisins og fylgjast með þeirri reglugerðarsmíð sem fram þarf að fara.``
Ég tók eftir því að hv. 17. þm. Reykv. kom aðeins inn á einmitt þennan punkt samkomulagsins og taldi það út í hött að tekið sé fram að Kvennalistinn muni taka þátt í störfum þessarar nefndar. Það er mjög eðlilegt að þegar Kvennalistinn gerir samkomulag við ríkisstjórnina sé tekið fram að einmitt fulltrúar hans muni taka þátt í störfum nefndarinnar. Það er ekki þar með sagt að ekki verði fleiri í þeirri nefnd, en það kemur auðvitað Kvennalistanum ekki við og óeðlilegt að þær hefðu afskipti af því hverjir aðrir fulltrúar mundu taka þátt í þeirri nefnd. Ég held því að sú gagnrýni sem hefur komið fram á þennan punkt eigi ekki verulega mikinn rétt á sér.
Ég fagna þessu samkomulagi ríkisstjórnarinnar og Kvennalistans. Það ber vott
um ríkulega félagslega vitund Kvennalistans og sýnir að Kvennalistinn hefur tekið á þessu máli af mikilli alvöru. Alþfl. var fyrsti flokkurinn á Íslandi sem hóf baráttu fyrir hinu félagslega íbúðalánakerfi. Hér er því um gamalt baráttumál Alþfl. að ræða og við tökum heils hugar undir tillögur sem beinast að styrkingu þess, sérstaklega þegar þær eru bornar fram af ábyrgð og af heilindum. Mér virðist sem sú gagnrýni, sem annars hefur komið fram á þetta kerfi og kom m.a. fram hjá hv. 17. þm. Reykv., gangi nokkurn veginn upp í sjálfa sig og eyði sjálfri sér að miklu leyti.
Ég gat tekið þessa gagnrýni saman í fjóra punkta. Það var talað um að vegna vaxtavandamála verði sennilega um ekkert húsbréfakerfi að ræða. Það verði bara ekki fyrir hendi. Það muni aldrei komast í gagnið, einmitt vegna vaxtapólitíkur. Þannig skildi ég einn punkt gagnrýninnar. Hins vegar er mikil áhersla lögð á það og miklum tíma eytt í það að það væri algjör nauðsyn að sett væri á stofn nefnd sem hefði að sérstöku rannsóknarefni hegðun húsbréfakerfis á markaði. Mér virðist að ef húsbréfakerfið kemst ekki í gagnið muni krafan um það að rannsakað verði hvernig húsbréfakerfið, sem aldrei kemst á markað, komi til með að haga sér á markaði eyða sér sjálf.
Það var talað um að húsbréf komi til með að valda verðbólgu vegna þess að framboð á húsbréfum komi til með að verða svo mikið. Í öðrum punkti er síðan talað um að húsbréf muni aldrei verða sparnaðarform vegna takmarkaðrar útgáfu húsbréfa. Ja, hvort gildir nú? Annað hvort hlýtur að gilda. Ef hins vegar bæði gilda í einu hljóta báðir punktarnir að eyða hvor öðrum.
Einn gagnrýnispunktur var sá að mikla nauðsyn beri, og það var niðurstaða 1. minni hl. félmn., til að
vísa málinu til ríkisstjórnarinnar vegna þess að það þurfi að athugast betur. Þetta var einmitt sá punktur sem settur var í samkomulag við Kvennalistann. Þessi nefnd verður sett á. Málið verður athugað betur. Ef svo skyldi fara, eftir alla þá athugun sem þetta mál hefur fengið, þá verður skipuð nefnd einmitt til þess að fylgjast með undirbúningnum þannig að ég held að meginniðurstöðu 1. minni hl. félmn. sé sinnt, þannig að ég skil ekki í öðru en að hægt sé að samþykkja þetta frv. undir þessum formerkjum og það er einmitt það sem 2. minni hl. félmn. leggur til, að það verði samþykkt með brtt. sem lagðar eru fram á sérstöku þingskjali.