Húsnæðisstofnun ríkisins
Laugardaginn 06. maí 1989

     Forseti (Hjörleifur Guttormsson):
    Ég vil svara ræðumanni. Það er samkomulag um það að ljúka nú fundi hér í deildinni og við það verður að sjálfsögðu staðið. Það er heppilegt að hv. ræðumaður er á kaflaskilum í ræðu sinni sem hann getur þá fram haldið á nýjum fundi. Þessari umræðu verður nú frestað þannig að hv. ræðumaður gerir hlé á ræðu sinni.