Forseti (Guðrún Helgadóttir):
Forseti mun freista þess að ljúka þessari umræðu. Tveir eru enn þá á mælendaskrá, en ákveðið hafði verið að utandagskrárumræða hefjist hér kl. 3. Ég mun fresta henni um sinn og reyna að ljúka þessari umræðu þar sem mjög hefur dregist að leiða hana til lykta.