Guðmundur H. Garðarsson:
Virðulegi forseti. Ég þakka forseta fyrir að leyfa umræðu í nokkrar mínútur fram yfir þann tíma sem hafði verið áætlað, en ég vildi koma upp og færa alveg sérstaklega hv. þm. Kristínu Halldórsdóttur þakkir fyrir hvað hún hefur talað ég vil segja af miklum skilningi um stöðu og rekstur fiskvinnslunnar. Það er vissulega mjög þýðingarmikið þegar hv. þm. koma að málum með þeim hætti sem hún hefur gert í umræðum bæði fyrr í vetur og núna um stöðu fiskvinnslunnar. Menn eiga því frekar að venjast að þeir sem hafa starfað í þessari atvinnugrein sérstaklega og eru á þingi standi uppi og tali um sínar sérgreinar, en hér stendur upp þingmaður sem hefur komið við sögu geri ég ráð fyrir einhvern tíma á ævinni í sambandi við vinnu í fiskvinnslu og á sérstakt frumkvæði um að ræða um stöðu þessarar mikilvægu atvinnugreinar með þeim hætti sem hv. þm. hefur gert. Er það vissulega bæði eftirtektarvert og þess virði að vekja sérstaka athygli á því að svona málflutningur er bæði því máli sem hér um ræðir og atvinnugreininni mikils virði.
Ég vildi, virðulegi forseti, fá að víkja að nokkrum atriðum sem mér finnst ekki hafa verið rætt um sem skyldi varðandi stöðu hraðfrystiiðnaðar og fiskvinnslu almennt á Íslandi. Það er það atriði að á síðustu 2--3 árum hefur orðið ákveðin ,,strúktúr``breyting í íslenskum sjávarútvegi og fiskvinnslu sem m.a. hefur haft í för með sér að títtnefndur fjármagnskostnaður hefur lagst miklu þyngra á fiskvinnsluna en orðið hefði ef sú breyting hefði ekki orðið í sambandi við sjávarútveg og fiskvinnslu sem ég ætla að koma inn á. Það sem hefur verið að gerast í íslenskum sjávarútvegi og fiskiðnaði er m.a. að á sama tíma sem við erum hér í kvótakerfi verður sú breyting að frystitogurum, frystiskipum fjölgar verulega á Íslandi, en það hefur haft í för með sér að þessi hluti togaraflotans, frystitogararnir, hafa tekið allverulegan hluta af kvótanum af eðlilegum ástæðum í vinnslu um borð með þeim áhrifum að minna hefur farið af fiski í vinnslu í landi. Jafnframt hefur það gerst að saltfiskmarkaðir hafa verið tiltölulega mjög sterkir svo að meira hefur farið í saltfisk. Þar við bætist þriðja atriðið, sem er mjög þýðingarmikið að hafa í huga, að á síðustu árum hefur útflutningur á ferskum fiski aukist mjög mikið. Þetta hefur haft í för með sér að þau fyrirtæki, m.a. þau frystihús sem höfðu fjárfest á síðustu árum verulega í endurbótum og sett upp nýtísku vélar og tæki, hafa setið uppi með mjög dýra fjárfestingu á sama tíma sem hráefnið, fiskurinn, hefur horfið frá þeim. Þetta hefur gert það að verkum að fjármagnskostnaðurinn hefur verið hlutfallslega þyngri en menn áttu von á. Þessu held ég að sé þýðingarmikið að gera sér grein fyrir jafnframt því sem innlend verðbólga hefur bætt við þann vanda sem fylgir því að vera mjög skuldugur.
Mér finnst nauðsynlegt, virðulegi forseti, að menn hafi í huga í fyrsta lagi þessar innlendu aðstæður, fjölgun frystitogara, en hér munu nú vera 20 raunverulegir frystitogarar. Það má gera ráð fyrir að
30--40 skip geti fryst um borð en raunverulegir frystitogarar eru um 20. Þetta hefur m.a. gert það að verkum að minna kemur til vinnslu í frystihús og fiskvinnslufyrirtæki í landi samfara stórauknum útflutningi á ferskum ísuðum fiski, en árið 1988 fóru 109 þús. smálestir á markaði í Bretlandi og Vestur-Þýskalandi, ýmist vegna þess að skipin sigldu sjálf eða þetta var flutt út í gámum. Fyrir 5--6 árum var þessi útflutningur um það bil 50 þús. smál. Þetta hefur komið mjög hart niður á fiskvinnslunni innan lands.
Ég vildi, virðulegi forseti, vekja athygli á þessu og enn fremur því að á síðasta ári varð verulegt verðfall á verðmætustu afurðategundum, þ.e. frystum sjávarafurðum sem voru seldar í Bandaríkjunum. Á sama tíma sem þetta verðfall verður á verðmætustu vörunni, sem eru fryst fiskflök, eykst útflutningur á óunnum frystum fiski. Sem dæmi má nefna að árið 1988 fóru um það bil 35 þús. smálestir af frystum sjávarafurðum til Bandaríkjanna. Þar af voru um 96% fiskflök og fiskblokkir. Á sama tíma fór svipað magn til Japans, um 35 þús. tonn. Þar af voru ekki nema 0,7% fiskflök og fiskblokkir. Þetta þýðir minni vinnu í landi, verri nýtingu á fiskvinnslustöðvunum og lakari afkomu bæði hjá fyrirtækjum og starfsmönnum. Þessi ,,strúktúr``breyting hefur haft gífurlega mikil áhrif til hins verra fyrir fiskvinnsluna í heild og einnig einstök fyrirtæki. Þetta vandamál er enn óleyst.
Ég vil taka undir það, og skal nú ljúka máli mínu, virðulegi forseti, að það er gersamlega út í bláinn að halda því fram að menn skuli binda vonir sínar við markaðsverðshækkanir á verðmætustu fisktegundum í útflutningsafurðum þjóðarinnar í ár. Það eru ekki góðar horfur á því að verð fari hækkandi á frystum fiskflökum í Bandaríkjunum. Það eru ekki góðar horfur á því að Sovétríkin verði góðir viðsemjendur við Íslendinga í ár á þeim frysta fiski sem við þurfum að selja í Sovétríkjunum. Þeir eru að breyta sínum innflutningsháttum þannig að innflutningur matvæla, þar með innflutningur á fiskmeti, er ekki í þeim forgangsflokki sem hann hefur verið hingað til. Sovétmenn segja: Við höfum ekki ráð á að nota verðmætan gjaldeyri til að flytja inn fisk og ýmsar aðrar vörutegundir. Ég nefni sem dæmi ullarvörur.
Einnig er ekki að vita hvað getur gerst á Evrópumarkaði í ár og vitað er að saltfiskmarkaðir eru erfiðir þannig að það er borin von að gera ráð fyrir því að staða íslensks sjávarútvegs og íslenskrar fiskvinnslu lagist af þeirri ástæðu.
Mín niðurstaða er sú í stórum dráttum, virðulegi forseti, að vandi sjávarútvegs og fiskiðnaðar er enn óleystur.