Búfjárrækt
Mánudaginn 08. maí 1989

     Guðmundur H. Garðarsson:
    Virðulegi forseti. Ég vildi óska eftir því að annaðhvort settur forsrh. eða hæstv. fjmrh. væru hér vegna þess atriðis sem ég vildi fá að ræða við hæstv. ríkisstjórn. Ég er með fyrirspurn um afar mikilvægt atriði sem snýr að fjmrh. eða hæstv. forsrh. ( Samgrh.: Er það viðkomandi þessu dagskrármáli?) Það er viðkomandi þessu máli og það er viðkomandi ákveðnu atriði í fskj. með þessu frv.