Lagmetisiðnaður
Mánudaginn 08. maí 1989

     Frsm. iðnn. (Stefán Guðmundsson):
    Herra forseti. Ég tala fyrir nál. iðnn. um frv. til l. um breytingu á lögum nr. 58 4. júní 1981, um lagmetisiðnað og Þróunarsjóð lagmetisiðnaðarins, með áorðnum breytingum.
    Nefndin fjallaði um þetta frv. á fundi sínum og varð sammála um að mæla með samþykkt þess. Undir nál. skrifa Karl Steinar Guðnason, Þorv. Garðar Kristjánsson, Margrét Frímannsdóttir, Stefán Guðmundsson, Guðmundur Ágústsson, Jón Helgason og Eyjólfur Konráð Jónsson.