Forseti (Óli Þ. Guðbjartsson):
    Af því tilefni sem hér hefur gefist vil ég upplýsa að hæstv. menntmrh. er á leið hingað til Alþingishússins þannig að það mun gefast tækifæri. --- Já, hann mun vera þangað kominn. Hann getur orðið viðstaddur 3. umr. a.m.k. þótt 2. umr. verði hér lokið og hv. 2. þm. Reykv. hefur fallist á að það sé nægilegt í þessu efni.