Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson):
Herra forseti. Örstutt athugasemd út af ræðu hv. 1. þm. Vestf. þar sem hann hefði kosið annars konar tekjuöflun. Ég sé ástæðu til að nefna að þessi tekjuöflun er ekki uppfinning hæstv. ríkisstjórnar sem nú situr. Ef ég man rétt var það hæstv. þáv. menntmrh. Sverrir Hermannsson sem fann upp þennan tekjustofn, benti á þennan tekjustofn til þess þarfa verkefnis að ljúka byggingu þjóðarbókhlöðunnar. Vel sé honum fyrir það. Og ég stóð að því með honum að fá þennan tekjustofn sérmerktan og lögfestan hér á Alþingi. Þetta er ekki skattur sem fundinn er upp af okkar góðu núv. ríkisstjórn.