Ingi Björn Albertsson:
    Hæstv. forseti. Ég vil að það komi fram að ég skrifaði ekki undir þetta nál. vegna þess að frjálslyndir hægrimenn eru alfarið á móti slíkri skattlagningu sem eignarskattur er, sama hver fann hann upp og hvenær hann var fundinn upp. Þetta er skattlagning af versta tagi og ekki sæmandi vestrænu þjóðfélagi eins og við þykjumst búa í. Eignarskattur er ekkert annað en tvísköttun sem á ekki að eiga sér stað. Við munum því á allan hátt reyna að berjast gegn slíkri skattlagningu hvort sem hún er í formi þessa tímabundna skatts sem nú á að framlengja í tíu ár --- og við höfum reyndar reynslu af að þessir tímabundnu skattar fara aldrei af, þeir verða til eilífðarnóns --- eða í hvaða mynd sem hann er. Við munum alla tíð berjast gegn eignarsköttum.
    Hins vegar er málefnið gott, en það þarf ekki að fara þessa leið til að afla fjármagns fyrir það málefni.
    Þetta vil ég að komi fram á þessu stigi málsins. Við munum greiða atkvæði gegn þessu frumvarpi.