Frsm. 1. minni hl. félmn. (Geir H. Haarde):
Herra forseti. Ég hef ekki hugsað mér að bæta miklu við þá ræðu sem ég flutti við upphaf þessarar umræðu og skal spara mér frekari efnisumfjöllun þar til við 3. umr. Ég tel þó óhjákvæmilegt að vekja athygli á því að hér í þessari umræðu er það komið í ljós, sem ég reyndar tel mig hafa upplýst með tilvitnun bæði í hæstv. félmrh. og í hv. 2. þm. Austurl., að um túlkun vaxtasamkomulags stjórnarflokkanna er verulegur ágreiningur. Ég tel að ummæli hv. 2. þm. Austurl. Hjörleifs Guttormssonar og fyrirspurnir hans hér fyrr í kvöld hafi staðfest og leitt í ljós að túlkun hans og hæstv. félmrh. á þessu samkomulagi er fjarri því að vera ein og hin sama.
Ég skal ekki endurtaka mínar röksemdir varðandi þessa vaxtahlið málsins frá því í minni fyrri ræðu, en bendi á það sem ég benti á fyrr að túlkun ráðherrans er auðvitað miklu nær því upphaflega samkomulagi og þeim upphaflegu hugmyndum sem menn höfðu þegar farið var af stað með þetta mál og þegar verið var að vinna það í milliþinganefndinni.
Ég vænti þess hins vegar að það skýrist kannski eitthvað frekar hvað hér er raunverulega uppi á teningnum, hvort það er það að vextir megi ekki undir neinum kringumstæðum vera hærri en 4,5%, eins og hv. 2. þm. Austurl. heldur fram, eða hvort þeir eigi að vera 0,5--1% undir þeim vöxtum sem Byggingarsjóður ríkisins borgar lífeyrissjóðunum, alveg sama hvað þeir vextir eru háir. Hv. 2. þm. Austurl. sagði nefnilega hér að það kæmi málinu ekkert við hversu háir vextirnir, sem Byggingarsjóðurinn verður að greiða, væru. Það væri bara alveg óviðkomandi því hversu háir vextir sjóðsins sjálfs til lántakenda ættu að vera. Þeir ættu ekki að vera hærri en 4,5%. Ég held að ég túlki ummæli hans nokkuð rétt. Hér er því auðvitað staðfest hyldýpi í viðhorfum í þessu lykilatriði málsins, enda má kannski segja sem svo að yfirlýsing ríkisstjórnarinnar hér að lútandi bjóði upp á tvöfalda túlkun eins og gjarnan er þegar menn eru að reyna að ná samkomulagi um það sem ekki er hægt að ná samkomulagi um. En ég vek athygli á því að hér segir, með leyfi forseta, í þessu samkomulagi: ,,Vextir á útlánum Byggingarsjóðs ríkisins hækka ekki fyrr en húsbréfakerfið tekur gildi og verða þá ekki hærri en 4--4,5%.`` ,,Þá,,, en ekki um alla framtíð. Það stendur ekki þarna. Ég held því að túlkun ráðherrans í þessu hljóti að vera nær lagi fyrir utan það að sú túlkun er nær því sem að var stefnt í upphafi.
En eins og ég sagði, herra forseti, ætla ég ekki að gera þetta efnislega meira að umræðuefni hér í nótt. Það mun gefast tækifæri til þess við 3. umr. auk þess sem eftir er að ræða fylgifrumvarpið um vaxtabæturnar, bæði við 2. og 3. umr., en þá gefst að sjálfsögðu tækifæri til að fjalla um þetta mál að nýju í heild sinni sé til þess ástæða. Ég vil aðeins vekja athygli á þeirri harla óvenjulegu umfjöllun sem frv. fékk hjá hv. 2. þm. Austurl. sem líkti því bæði við óbermi og skötulíki en ætlar samt að styðja málið að því er best verður skilið.
Herra forseti. Hér hefur verið útbýtt í deildinni eins
og forseti gat um brtt. sem ég ásamt tveimur öðrum hv. þm. hyggst flytja. Þannig stendur á að afbrigði hafa ekki verið veitt fyrir þessum tillögum þannig að ekki er unnt að mæla fyrir þeim hér með formlegum hætti, en þær munu verða teknar til atkvæða hér á morgun og um það er samkomulag að þá verði ekki tekið til máls af minni hálfu til þess að mæla fyrir þeim. Ég vildi eigi að síður, þó svo að ég mæli hér ekki formlega fyrir þessum tillögum, láta þess getið að þær varða þann þátt frv. sem alls ekki snertir húsbréfakerfið. Í minni upphafsræðu lét ég þess einmitt getið að þessar greinar, þ.e. síðari hluti 1. gr. og 2. og 3. gr. frv., sneru að því að reyna að lappa upp á núgildandi útlánakerfi án þess að það sé í nokkrum tengslum við húsbréfakerfið.
En auðvitað verða menn að gera það upp við sig hvora leiðina menn ætla að fara. Annaðhvort lappa menn upp á núverandi kerfi eða menn koma sér út úr því með einhverjum hætti, t.d. með því að leggja til húsbréfakerfi. En það er auðvitað engin sérstök skynsemi í því að blanda þessu saman eða gera það í sama frumvarpinu eins og ég rakti ítarlega í mínu máli hér í upphafi. Það er þess vegna fullkomlega eðlilegt að þessar greinar séu felldar út úr frv., að hér sé bara hreint húsbréfafrv. á ferðinni og að vilji menn fara þá leið að lappa upp á núverandi kerfi, þá geri menn það í heild sinni en taki ekki einstaka litla þætti út úr eins og þarna er gert. Það er yfirlýst í umsögn, sem barst félmn. frá Húsnæðisstofnun ríkisins og mér reyndar láðist að geta um í minni framsöguræðu, að þessar breytingar í 1., 2. og 3. gr. munu hafa sáralitla ef nokkra þýðingu að því er Húsnæðisstofnun telur. Hér er því á ferðinni óeðlileg samblöndun mála og þar að auki atriði sem ljóst er að skipta litlu eða engu máli, en að því marki sem þessar breytingar skipta máli stefna þær allar í þá átt, eins og ég gat um, að takmarka eða þrengja rétt einhverra örfárra einstaklinga sem hafa lánsrétt í núgildandi kerfi en mundu ekki hafa næðu þessar breytingar fram að ganga. Ég nefndi sérstaklega þann möguleika að smábátaútgerðarmenn, vörubílstjórar og aðrir sem eiga atvinnutæki en ekki íbúð, eiga eign en ekki íbúð, mundu þarna detta út úr og það tel ég alveg
ástæðulaust því að slíkir aðilar hafa þá væntanlega ekki heldur lánsmöguleika í sínum eigin lífeyrissjóði.
Í framhaldi af því að brtt. munu væntanlega koma til atkvæða við 2. umr., herra forseti, vildi ég láta það koma fram --- og að því er ég best veit mæli ég líka fyrir munn hv. 1. þm. Vesturl., en við höfum í tveimur minnihlutaálitum ásamt hv. þm. Eggert Haukdal lagt til að frv. verði vísað til ríkisstjórnarinnar --- að því er ég best veit mæli fyrir hönd okkar allra er við drögum þá tillögu til baka við 2. umr. að frv. verði vísað til ríkisstjórnarinnar en munum þess í stað óska þess að sú tillaga komi til atkvæða við 3. umr. Vildi ég gjarnan mega koma því á framfæri hér, reyndar óháð þessum brtt. á nýútbýttu þingskjali, þannig að ég þurfi ekki að geta þess sérstaklega þegar málið kemur til atkvæða við 2. umr. Hugmyndin er sem sagt sú að draga þá tillögu að vísa
málinu til ríkisstjórnarinnar til baka til 3. umr. eins og algengt er við afgreiðslu mála hér á Alþingi.
Að svo mæltu læt ég má1i mínu lokið að sinni og ætla ekki að níðast á þolinmæði viðstaddra hv. þm. með því að setja hér á lengri ræður á þessum tíma sólarhrings.