Hjörleifur Guttormsson:
Virðulegur forseti. Það fór svolítið í verra þegar hæstv. ráðherrann tók hér til máls í umræðunni áðan og fór að fjalla um málið. Satt að segja kom það mér mjög mikið á óvart sem fram kom í máli hæstv. ráðherra þar sem hún fór að rekja greinargerðir með frv. sem hér er til umræðu og innahússsamþykktir í ríkisstjórninni sem einhver ákvarðandi atriði varðandi þetta mál sem hér er til umræðu og ég gerði að umræðuefni í mínu máli, þ.e. í sambandi við vexti á lánum Byggingarsjóðs ríkisins. Mér finnst bera nokkuð nýtt við ef hæstv. ráðherrar og hæstv. félmrh. ætla að láta eins og samþykktir meiri hluta þingnefnda sem liggja hér fyrir og tengjast þessu máli sem vind um eyru þjóta, láta nánast eins og þær liggi ekki fyrir og séu ekki til. Það fer nú að verða dálítið langt á milli framkvæmdarvalds og löggjafarvalds ef þannig á að vinna að málum.
Ég hef þegar vitnað til þess sem fyrir liggur á þskj. 1033 sem samþykkt meiri hl. fjh.- og viðskn. í þessu máli varðandi vexti þar sem þar stendur með beinum hætti og ákvarðandi að vextir af lánum Byggingarsjóðs ríkisins verði ekki hærri en 4,5%. Fyrir utan það að það liggur fyrir sem stefnumótun af hálfu míns flokks og liggur fyrir sem skilyrt varðandi þetta mál af okkar hálfu. Og svo kemur bara hæstv. ráðherra hér og ætlar að láta eins og þetta liggi ekki fyrir. Mér þykir þetta mjög leitt, ráðherrans vegna, að hann skuli ekki ætla að virða þingið og þann meiri hluta sem tekið hefur saman um þessa ríkisstjórn, meira en skilja mátti af orðum hennar hér áðan. Ég sá mig knúinn til þess að ítreka það sem hér liggur fyrir, virðulegur forseti, af þessu tilefni. Ég vænti að hæstv. ráðherra sofi á þessu máli í nótt og láti sig dreyma vel og vakni upp til veruleikans að morgni.