Stjórn fiskveiða
Þriðjudaginn 09. maí 1989

     Karvel Pálmason:
    Virðulegur forseti. Ég skal ekki lengja mikið þessa umræðu þó að ástæða væri til eftir þá ræðu sem var flutt áðan.
    Hér var mikið vitnað til þess hverjir bera ábyrgð á því ástandi sem er í sjávarútvegi hér á Íslandi í dag. (Gripið fram í.) Nú bíð ég rólegur meðan menn geta létt á sér úr sætum. Hverjir bera ábyrgð? Er það ekki rétt munað hjá mér að það hafi verið Sjálfstfl. og Framsfl. sem voru í ríkisstjórn 1983--1987? Hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson. Er það ekki rétt munað hjá mér eða fer ég með rangt mál? Þá vitum við það. ( GHG: Enda var góðæri þá í sjávarútvegi.) Til 1987, já. (Gripið fram í.) Það sýnir sig nú, hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson, hversu mikið góðærið var. Hvað var búið að undirbyggja þá? ( GHG: Það voru markaðarnir sem létu undan.) Það var árið 1983, sagði hv. þm. áðan, sem kvótinn var settur á, í stjórnartíð Sjálfstfl. og Framsfl., mesti bölvaldurinn. ( VS: Það var góð stjórn.) Það kann vel að vera að menn hafi enn slíkar skoðanir uppi og kannski flest af unga fólkinu sem ekki þekkir nógu mikið til að því er varðar pólitík að það hafi verið mjög góð stjórn. Það kann vel að vera. Ekki ætla ég að neita því neitt. Það mat er ábyggilega mismunandi eftir því hver á hlut að máli. En það var ekki góð ákvörðun þeirrar ríkisstjórnar að taka upp kvótakerfið.
    Hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson spurði: Eru þessir menn bornir ofurliði? Þá átti hann við mig og hv. þm. Skúla Alexandersson að því er varðaði stjórnun í sjávarútvegi. Ég viðurkenni það, hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson, að ég var borinn ofurliði í stjórninni sem þú, hv. þm., studdir undir forsæti Þorsteins Pálssonar. Þar var ég borinn ofurliði í kvótamálinu, m.a. af hv. þm. Guðmundi H. Garðarssyni. ( GHG: Ég afneitaði ekki gjörðum mínum.) Hver afneitaði þeim? ( GHG: Þið eruð alltaf að gera það.) Það gerði það enginn, að afneita þeim gerðum. Ég er nákvæmlega sömu skoðunar núna og ég var þá. En þar var ég borinn ofurliði af m.a. hv. þm. Guðmundi H. Garðarssyni að því er varðar kvótann. Þetta viðurkenni ég og hlýt að lúta lýðræðislegum leikreglum og taka slíkri niðurstöðu. En þessi hv. þm. er einn af þeim sem báru mig ofurliði í þessu máli.
    Það er út af fyrir sig alveg rétt hjá hv. þm. Guðmundi H. Garðarssyni að kvótanum er ekki allt að kenna þó að ég telji að hann hafi veruleg áhrif haft á stöðu sjávarútvegs eins og hún hefur þróast undanfarin ár. Mér sýnist það augljóst. Auðvitað eru líka aðrir þættir sem hefði þurft að taka öðrum höndum á en gert hefur verið og menn getur greint á um hverjir þar bera mestu ábyrgðina. En þeir hinir stærstu stjórnmálaflokkar í landinu hafa lengst af setið við stjórnvöl og stýrt og þeir hljóta þá að bera sína ábyrgð í þessum efnum.
    En varðandi kvótakerfið sjálft er kannski ekki fyrst og fremst við þingmenn að sakast. Það voru hagsmunaaðilarnir sjálfir sem nánast réðu ferðinni í þessum efnum. Auðvitað er það meiri hluti Alþingis

sem ákvarðaði þetta á sínum tíma, því miður, en það voru hagsmunaaðilarnir sem réðu ferðinni að verulegu leyti þegar kvótinn var settur á á sínum tíma. Ég held hins vegar að menn séu farnir að sjá nú að þar þarf að fara öðruvísi að en er gert í dag. Það gæti verið einn meginþátturinn í því að leiðrétta stöðu sjávarútvegs og fiskvinnslu. Það er hárrétt hjá hv. þm. Guðmundi H. Garðarssyni. Sjómennirnir, verkafólkið í frystihúsunum, þeir sem sjá um fyrirtækin, það þarf að búa þannig að þessu fólki að því sé vel launað því það er það sem þjóðin lifir á. Það er ekki ágreiningur okkar í milli að því er þetta mál varðar. En á þessu hefur orðið misbrestur, því miður. Þessa hefur ekki verið gætt.
    Hv. þm. talaði um að hér væru menn að ráðast á hæstv. sjútvrh. Ég held ég muni það rétt að ég tók það nú sérstaklega fram áðan þegar ég talaði að ég væri ekki að ráðast á hann. ( GHG: Hann ber ábyrgð á stefnunni í hæstv. ríkisstjórn.) Hann bar líka ábyrgð á þeirri stefnu í fyrrv. ríkisstjórn. Hann var líka sjútvrh. þar. ( GHG: Ekki réðumst við þá á hann, sjálfstæðismenn.) Það er ekkert verið að ráðast á tiltekna hæstv. ráðherra þó að menn tali um þeirra málaflokka, ekki síst svo stóran málaflokk sem hér er um að ræða. En hann er að framfylgja þeirri stefnu sem meiri hluti Alþingis hefur lagt honum á herðar að framfylgja. Í þeim meiri hluta er hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson. Það geta menn ekki af sér þvegið. (Gripið fram í.) Jú, jú, það er stjórnarstefna. ( GHG: Er það ekki hún sem ræður?) Jú, jú, byggt á því sem hv. þm. samþykkti fyrir 1 1 / 2 ári. ( GHG: Við erum ekki stjórnarflokkar.) Ætla menn að hlaupa sitt á hvað af því að þeir eru ekki í stjórn þennan daginn en eru það hinn? Þetta þykir mér vera farið að teygjast út og suður ef menn hafa skoðanir bara eftir því hvort þeir styðja ríkisstjórn eða ekki.
    Ég skal ekki, virðulegur forseti, eyða öllu lengri tíma í þetta mál. En ég ítreka og hef aldreið farið leynt með þá skoðun mína að sú miðstýring sem kvótakerfið býður upp á úr hendi eins manns gengur ekki. Það dæmi gengur ekki upp. Því verður að breyta. Undan því verður ekki komist. Ef menn ætla að halda þessu áfram, t.d. út þetta ár og næsta ár, hvar halda þá menn að fiskvinnslufyrirtækin verði stödd og atvinnan í sjávarplássunum vítt og breitt
um landið? Ég held að menn geti ekki litið undan þessu. Menn verða að horfast í augu við staðreyndir. Þetta kerfi hefur ekki, eins og þeir vildu eða töldu sem komu því á, orðið til bóta. Því verður að breyta. Auðvitað þarf að stýra, en ekki með þeim hætti sem þetta kerfi gerir ráð fyrir. (Gripið fram í.) Ég get tekið undir það og ég held að ég hafi viðhaft þau orð hér einhvern tíma í haust rétt eftir að núv. ríkisstjórn var mynduð að mér sýndist ekki að það væri sett undir allan leka í efnahagsstjórninni þó að stjórnarskipti yrðu. En hvað horfðu menn framan í á þeim dögum? (Gripið fram í.) Hvað segir hv. þm. Halldór Blöndal sem á nú að vera hér inni í deild?
    Nei, ég tek undir að vissulega þarf betur að gera í efnahagslífinu og það þarf að taka traustari tökum á

efnahagsstjórninni ef menn ætla ekki bara að fljóta að feigðarósi algerlega. Ef menn ætla ekki að fljóta að feigðarósi í efnahagsstjórninni verða menn betur að taka til höndunum. Það hygg ég að við hv. þm. Halldór Blöndal getum verið sammála um og hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson líka. Þetta segir ekkert að fyrrv. hæstv. ríkisstjórn hafi verið eitthvað betri nema síður sé. Þar voru menn komnir á bjargbrúnina nánast í fyrrahaust undir forsæti hv. þm. Þorsteins Pálssonar, formanns stóra flokksins sem nú er verið að tala um í skoðanakönnunum. En menn telja væntanlega ekki skoðanakannanirnar upp úr kjörkössunum. Það er allt annað sem verður talið þar upp úr.
    Nóg um þetta, herra forseti. Ég á vart von á að ég blandi mér frekar í þessar umræður nema eitthvað sérstakt komi upp á. En vissulega er þetta mál sem er þess virði að sé rætt af hv. nefnd. (Gripið fram í.) Jú, en ég ræði ekki hér í deildinni nefndafundina. Ef formaður, hv. þm. Stefán Guðmundsson, ætlast til þess að við höldum fundi sjútvn. í deildinni get ég mætt hér.