Stjórn fiskveiða
Þriðjudaginn 09. maí 1989

     Guðmundur H. Garðarsson:
    Virðulegi forseti. Ég vildi gjarnan fá að vita hvort hæstv. sjútvrh., sem er nú starfandi forsrh., er farinn úr húsinu. Ég gleymdi nefnilega að koma að einu atriði sem hefur þýðingu fyrir fiskvinnsluna og útgerðina því að eins og hv. þm. vita hafa mörg þessara fyrirtækja reynt að breyta um rekstur þannig að þeirra menn hafa reynt að koma sér upp hliðarbúgrein ef það mætti orða það þannig. Mörg þessara fyrirtækja hafa farið út í fiskeldi. Ég var með fyrirspurn, virðulegi forseti, til hæstv. ráðherra varðandi þetta. Það er ekki aðeins að fiskvinnslan eigi í erfiðleikum vegna þess að henni hefur ekki verið sköpuð rétt rekstraraðstaða og starfsskilyrði heldur blasir nú við að þessi atvinnugrein getur tapað ég vil segja hundruðum milljóna.
    Já, nú er hæstv. sjútvrh. kominn. Ég gleymdi áðan, hæstv. ráðherra, að koma með eina fyrirspurn sem er mjög þýðingarmikið að fá svar við. Eins og hæstv. ráðherra veit hafa mörg fiskiðnaðarfyrirtæki farið út í að taka þátt í og reka fiskeldisstöðvar á síðustu árum og það er búið að fjárfesta verulega mikið í fiskeldisstöðvum, auk þess sem það er mikil fjárfesting í seiðum þannig að þetta skiptir ekki orðið tugum milljóna heldur hundruðum milljóna frá rekstrarlegu sjónarmiði sem er undir á hverjum tíma fyrir utan að í fiskeldisstöðvunum og hafbeitarstöðvunum eru fjárfestingar upp á milljarða króna.
    Nú er staðan þessi að ofan á vonda og erfiða stöðu fiskiðnaðarfyrirtækja í sambandi við vöntun á réttum starfsgrundvelli bendir allt til þess að yfirstandandi verkfall geti haft í för með sér að fiskeldisstöðvarnar fái ekki nauðsynlegt fóður þar sem dýralæknar sem eiga að skrifa upp á skírteini um að fóðrið fullnægi þeim kröfum sem gerðar eru til innflutts fóðurs eru í verkfalli og þær fái ekki fóður afgreitt. Við sem störfum í fiskeldi vitum að þetta er einhver viðkvæmasti tíminn sem er í fiskeldi, sérstaklega í sambandi við seiðin. Ef við tökum hafbeitarstöðvar eru seiðin á lokastigi áður en þeim verður sleppt og ef það gerðist að þessar stöðvar fengju ekki fóður afgreitt vegna verkfallsins er ekki aðeins verið að drepa seiði sem skipta milljónum og verðmæti ómælanlegt heldur einnig raunverulega verið að leggja í rúst margra ára uppbyggingu og fjárfestingu upp á milljarða í fiskeldisstöðvunum. Afleiðingarnar af þessu er þvílíkar að ég þori ekki að hugsa til þess að ekki verði gripið til ráðstafana sem tryggi að fiskeldisstöðvarnar geti starfað með eðlilegum hætti við þessar erfiðu kringumstæður.
    Mín spurning til hæstv. ráðherra er því þessi: Hefur hæstv. ríkisstjórn fjallað um þetta atriði sem lýtur að fiskeldisstöðvunum og er ríkisstjórnin með í bígerð ráðstafanir til að tryggja að það slys verði ekki að fiskeldisstöðvarnar geti ekki starfað með eðlilegum hætti? Ég ítreka að ef ekki verður gripið til ráðstafana á næstunni til að tryggja það eru í húfi verðmæti fyrir hundruð milljóna fyrir utan að það er verið að leggja í rúst margra ára uppbyggingu og fjárfestingu. Ég

treysti því að hæstv. ráðherra svari þessari spurningu og ég treysti því einnig að hæstv. ráðherra muni beita sér fyrir því að ríkisstjórnin geri viðeigandi ráðstafanir til þess að það hörmulega slys verði ekki sem nú virðist blasa við vegna þess að vinnudeilan er óleyst.